- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Viggó í liði umferðarinnar með hæstu einkunn

- Auglýsing -

Viggó Kristjánsson er í úrvalsliði 24. umferðar þýsku 1. deildarinnar eftir stórkostlega frammistöðu sína í 36:31 sigri HC Erlangen á GWD Minden á sunnudag.

Viggó skoraði 16 mörk úr 19 skotum og fékk hæstu mögulegu einkunn, 100 HPI stig, hjá þýsku deildinni fyrir frammistöðu sína.

Viggó er orðaður við Flensburg


Daninn Lasse Møller, vinstri skytta SG Flensburg-Handewitt, fékk sömuleiðis 100 HPI stig, en HPI stuðullinn tekur saman ýmsa tölfræðiþætti.

Saman mynda Viggó og Møller skyttupar úrvalsliðs 24. umferðar deildarinnar. Þetta er í fyrsta sinn á tímabilinu sem Viggó er kjörinn í úrvalslið þýsku deildarinnar.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -