- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Viggó og Andri fá öflugan liðsauka

- Auglýsing -

Þýska félagið HC Erlangen hefur samið við franska markvörðinn Rubens Pierre um að leika með liðinu frá og með næsta tímabili. Pierre kemur frá Tremblay Handball í Frakklandi, þar sem hann er með 33 prósent hlutfalls markvörslu á tímabilinu, þá bestu í frönsku 1. deildinni.

Pierre hefur áður leikið með landsliði Gíneu, gerði það til að mynda á HM 2025, en skipti á síðasta ári um ríkisfang.


Með HC Erlangen leika Íslendingarnir Viggó Kristjánsson og Andri Már Rúnarsson. Viggó gengur svo til liðs við SG Flensburg-Handewitt sumarið 2027. Erlangen er í 13. sæti af 18 liðum þýsku 1. deildarinnar.

Vakti athygli með Gíneu á HM 2025

Pierre, sem er 26 ára gamall og 203 sentimetrar á hæð, vakti mikla athygli þegar hann varði 22 skot í tapi Gíneu fyrir Ungverjalandi á HM 2025.

Nú hyggst  hann reyna fyrir sér með Frakklandi en talið er líklegt að Pierre verði hluti af næsta landsliðshópi þjálfarans Talants Dujshebaev þegar umspil undankeppni HM 2027 fer fram um miðjan maí.


Frakkar mæta þá Tékkum í umspili um laust sæti á heimsmeistaramótinu í Þýskalandi.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -