Landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson skipar sér í sess bestu markvarða Evrópumótsins í Danmörku, Svíþjóð og Noregi ef litið er til fjölda varðra skota. Óðinn Þór Ríkharðsson er þá sá leikmaður sem lék næstflestar mínútur á öllu mótinu.
Í tölfræðisamantekt Handknattleikssambands Evrópu, EHF, kemur fram að Viktor Gísli hafi varið 77 skot í níu leikjum á mótinu. Flest skot varði besti markvörður mótsins, Andreas Wolff hjá Þýskalandi, eða 91 skot.
Gísli stoðsendingahæstur á EM – fimm á lista yfir þá markahæstu
Emil Nielsen liðsfélagi Viktors Gísla hjá Barcelona varði næstflest skot eða 80. Þegar hlutfallsmarkvarsla er skoðuð hrynur Viktor Gísli hins vegar niður listann og er í 17. sæti með 26% vörslu. Fékk hann enda flest skot allra á sig, 296.
Fjórir Íslendingar á topp tíu yfir flestar mínútur
Mikið mæddi á hægri hornamanninum Óðni Þór Ríkharðssyni sem fékk litla hvíld og spilaði samtals í sjö klukkustundir og 14 mínútur. Aðeins Daninn Mathias Gidsel, verðmætasti og markahæsti leikmaður Evrópumótsins, lék lengur.
Það var ekkert smáræði, Gidsel lék í átta klukkustundir og 20 mínútur og hvíldi því aðeins í 40 mínútur samtals á mótinu.
Fleiri Íslendingar eru á topplistanum yfir flestar mínútur spilaðar en á topp 30 lista yfir þá leikmenn sem spiluðu mest eru alls sex íslenskir leikmenn og þar af eru fjórir á topp tíu.
Leikmennirnir sex sem komast inn á listann eru:
2. sæti – Óðinn Þór Ríkharðsson, 7 klst. og 14 mín.
5. sæti – Viktor Gísli Hallgrímsson, 6 klst. og 53 mín.
8. sæti – Elliði Snær Viðarsson, 6 klst. og 32 mín.
9. sæti – Ómar Ingi Magnússon, 6 klst. og 26 mín.
16. sæti – Janus Daði Smárason, 5 klst. og 48 mín.
29. sæti – Orri Freyr Þorkelsson, 4 klst. og 49 mín.



