- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Viktor Gísli skellti í lás í stórsigri – Ómar Ingi fjarverandi hjá Magdeburg

- Auglýsing -

Viktor Gísli Hallgrímsson fór hamförum í marki Barcelona þegar liðið lagði RK Zagreb einkar örugglega að velli, 46:26, í 12. umferð B-riðils Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Íslendingalið Magdeburg gerði þá jafntefli við Wisla Plock í Póllandi, 29:29, þar sem Ómar Ingi Magnússon var fjarri góðu gamni vegna þess að eiginkona hans á von á sér.

Viktor Gísli gerði sér lítið fyrir og varði 17 skot, sem gerir 39,5% markvörslu. Barcelona er áfram í öðru sæti B-riðils, nú með 22 stig, og Magdeburg er á toppnum með 23. Bæði lið eru komin áfram í átta liða úrslit.


Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði fjögur mörk úr jafnmörgum skotum fyrir Magdeburg og tryggði liðinu jafntefli með síðasta marki leiksins nokkrum sekúndum fyrir leikslok. Auk þess sem Ómar Ingi var fjarverandi er Elvar Örn Jónsson frá vegna handarbrots.

Íslendingaliðin komin áfram

Í sama riðli skoraði Janus Daði Smárason tvö mörk úr fjórum skotum fyrir Pick Szeged í naumu tapi fyrir PSG, 29:28, í París. Bæði lið voru þegar búin að tryggja sér sæti í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar.


Orri Freyr Þorkelsson skoraði þá tvö mörk úr fimm skotum fyrir Sporting Lissabon í 35:33 sigri á Aalborg Håndbold í A-riðli.

Sporting fer í fyrstu umferð útsláttarkeppni keppninnar og Aalborg var þegar búið að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -