Barcelona varð í efsta sæti B-riðils Meistaradeildar karla í handknattleik en keppni í riðlinum lauk í gærkvöld. Evrópumeistarar SC Magdeburg töpuðu öðrum leiknum í röð og höfnuðu í öðru sæti. Barcelona og Magdeburg voru fyrir nokkru búin að tryggja sér tvö efstu sætin og þar af leiðandi keppnisrétt í 8-liða úrslitum. Liðin sem urðu í þriðja, fjórða, fimmta og sjötta sæti verða með í útsláttarkeppni ásamt fjórum liðum úr sömu sætum A-riðils. Keppni í A-riðli lýkur í kvöld.
Viktor fór á kostum
Viktor Gísli Hallgrímsson fór á kostum í marki Barcelona í síðari hluta viðureignar liðsins við Eurofarm Pelister í gærkvöld. Hann varði 12 skot og var með 50% hlutfallsmarkvörslu. Viktor Gísli lét ekki þar við sitja heldur skoraði einnig tvö mörk, sín fyrstu í Meistaradeild Evrópu.
Barcelona vann leikinn með yfirburðum, 47:27, gegn Pelister sem leikur undir stjórn Stevche Alushovski, fyrrverandi þjálfara Þórs Akureyri. Pelister hefur lokið keppni í Meistaradeildinni.
Svavar Ólafur Pétursson og Sigurður Hjörtur Þrastarson dæmdu leikinn Palau Blaugrana í Barcelona.
Adrian Sola skoraði sjö mörk fyrir Barcelona og Dika Mem var næstur með sex mörk.
Elvar Örn lék með
Elvar Örn Jónsson tók þátt í öðrum leik sínum í röð eftir meiðsli í gær í átta marka tapi Magdeburg í heimsókn til PSG í París, 34:26. Elvar Örn skoraði m.a. þrjú mörk. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði eitt mark. Ómar Ingi Magnússon fór ekki með til Parísar en hann bíður eftir fæðingu barns.
Manuel Zehnder skoraði sjö mörk fyrir Magdeburg og Albin Lagergren skoraði sex mörk.
Elohim Prandi skoraði 11 mörk fyrir PSG og línumaðurinn Kamil Syprzak bætti við níu mörkum.
Janus Daði Smárason kom lítið við sögu í jafnteflisleik Pick Szeged við Wisla Plock í Póllandi, 30:30. Bæði lið voru örugg um sæti í útsláttarkeppninni áður en flauta varð til leiks.
Loks vann danska liðið GOG botnlið riðilsins, RK Zagreb, 33:28, í Arena Svendborg. Hlynur Leifsson var eftirlitsmaður EHF.
Lokastaðan í B-riðli:



