Leikið verður til úrslita í Meistaradeild kvenna í handknattleik á morgun og á sunnudag. Eins og undanfarin ár fara úrslitaleikirnir fram í hinni glæsilegu keppnishöll í Búdapest, MVM Dome, sem tekin var í notkun fyrir Evrópumót karalandsliða í upphafi ársins 2022.

Til úrslita leika ungverska liðið Győri, sem vann Meistaradeildina fyrir ári, franska meistaraliðið Metz, dönsku meistararnir Esbjerg og annað danskt félagslið, Odense Håndbold. Győri er eina liðið af þremur sem hefur unnið Meistaradeild Evrópu. Metz er hinsvegar sigursælasta lið keppninnar á leiktíðinni.
Győr Audi ETO – Team Esbjerg
Laugardagur 31. maí kl. 13 – MVM Dome, Búdapest.
- Ungverska liðið Győri vann Meistaradeildina fyrir ári síðan og eina liðið af þeim fjórum sem taka þátt í úrslitahelginni að þessu sem hefur unnið keppnina.
- Győri er að taka þátt í úrslitahelgi Meistaradeildar kvenna í níunda sinn röð, á meðan mótherjar þeirra Esbjerg eru að taka þátt í fjórða skiptið í röð.
- Győri og Esbjerg mættust einnig í undanúrslitum á síðasta ári. Győri hafði betur, 24:23.

- Győri hefur unnið Esbjerg í þau níu skipti sem liðin hafa mæst í Meistaradeild Evrópu í gegnum tíðina.
- Henny Reistad, leikmaður Esbjerg, er markahæsti leikmaður Meistaradeildarinnar 2024/25 með 139 mörk. Hægri skyttan Dione Housheer er markahæst hjá Győri með 78 mörk.
- Ríkjandi meistarar, Győri, mæta til Búdapest eftir að hafa unnið ungverska meistaratitilinn í 18. sinn.
- Esbjerg er komið í úrslit um danska meistaratitilinn og hefur einvígi sitt við Odense Håndbold í næstu viku.
Metz Handball – Odense Håndbold
Laugardagur 31. maí kl. 16 – MVM Dome, Búdapest.
- Metz Handball tekur í fjórða sinn þátt í úrslitahelgi Meistaradeildar. Metz hefur unnið 15 leiki í röð og er einum sigri frá að jafna met ungverska liðsins Győri.
Odense er eina liðið af þeim fjórum sem tekur þátt í úrslitahelginni sem hefur ekki áður náð svo langt. Ekkert hinna þriggja liðanna, Győri, Metz eða Esbjerg, tók heldur þátt í fyrstu umferð útsláttarkeppni Meistaradeildar.
- Markahæsti leikmaður Odense er Thale Deila með 78 mörk, á meðan línumaðurinn Sarah Bouktit hefur skorað flest mörk Metz, 96.

- Í síðustu fjórum viðureignum Metz og Odense í Meistaradeild Evrópu hefur Metz unnið þrisvar sinnum, en einn leikur endaði með jafntefli
- Þjálfarinn Odense, Ole Gustav Gjekstad, var þjálfari norska liðsins Vipers þegar það vann Meistaradeildina þrjú ár í röð, 2021, 2022, 2023.

- Gjekstad hættir þjálfun Odense eftir leiktíðina og einbeitir sér að þjálfun norska kvennalandsliðsins. Gjekstad var ráðinn í stað Þóris Hergeirssonar um síðustu áramót en fær að ljúka starfstíma sínum hjá Odense.
- Leikurinn verður sá síðasti sem þar sem tveir af fremstu markvörðum sögunnnar í kvennahandknattleik, Cléopatre Darleux hjá Metz og Katrine Lunde markvörður Odense, verða andstæðingar. Darleux leggur keppnisskóna á hilluna í sumar.
- Katrine Lunde hefur sjö sinnum verið í sigurliði Meistaradeildar Evrópu, oftar en nokkur önnur kona. Hún getur bætt áttundu gullverðlaununum við.
- Allison Pineau ein fremsta handknattleikskona Frakka frá upphafi ætlar að hætta handknattleik eftir leikina um helgina. Pineau er 36 ára gömul. Hún var valin besta handknattleikskona heims 2009 af Alþjóða handknattleikssambandinu.
- Metz varð franskur meistari í 27. sinn á dögunum. Odense á hinsvegar eftir úrslitarimmu sína við Esbjerg um danska meistaratitilinn. Fyrsti leikurinn fer fram næsta fimmtudag.