„Mér líður mjög vel. Ég er svo glöð að vera komin í úrslit,“ sagði Embla Steindórsdóttir, leikmaður Hauka, í samtali við handbolta.is eftir að liðið tryggði sér sæti í úrslitum Powerade bikarsins með sigri á Fram í kvöld.
Embla var markahæst í leiknum með átta mörk og gaf auk þess þrjár stoðsendingar.
Haukar leika til úrslita – unnu Fram í spennuleik
Beðin um að rýna nánar í leik kvöldsins sagði hún: „Þetta byrjaði mjög jafnt enda var það eitthvað sem við bjuggumst við.
Við spiluðum við þær fyrir tveimur vikum og unnum svolítið stórt þannig að við vissum að þær myndu koma með klærnar hérna og reyna allt sem þær gætu til þess að vinna. Við mættum bara betur til leiks í dag.“
Í seinni hálfleik kom þetta
Hvað skóp sigurinn í kvöld?
„Liðsheildin og stemningin. Við vorum allar í vörninni að fagna hverri annarri og hjálpast að. Við vorum þéttar og í seinni hálfleik kom þetta fannst mér. Við náðum að stoppa þær,“ sagði Embla.
Haukar eru ríkjandi bikarmeistarar og hyggjast vitanlega verja titilinn í úrslitaleiknum á laugardag þar sem liðið mætir annað hvort Val eða KA/Þór.
„Já, auðvitað. Við þurfum að vinna alla til þess að vinna bikarinn en ég held nú að Valur vinni þennan leik,“ sagði hún að lokum.



