- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Vona innilega að margir Valsarar komi á laugardaginn

- Auglýsing -

„Líðanin er mjög ljúf. Það er ótrúlega gott að klára þetta á góðum sigri. Þetta er mjög ljúft,“ sagði Lovísa Thompson, leikmaður Vals, í samtali við handbolta.is eftir að liðið tryggði sér sæti í úrslitum Powerade bikarsins með sjö marka sigri á KA/Þór í undanúrslitum í Kuehne+Nagel höllinni á Ásvöllum í kvöld.

Lovísa átti frábæran leik í liði Vals, var næstmarkahæst með sex mörk, fiskaði þrjú víti og gaf tvær stoðsendingar ásamt að standa vaktina í vörninni með glans.

Valur leikur til úrslita í bikarnum í sautjánda sinn


„Ég upplifði þennan leik þannig að hann væri svolítið þolinmæðisverk. Að standa þær af okkur því þær eru með ótrúlega beittar árásir, með ótrúlega spræka leikmenn og taka sér góðan tíma í hlutina.

Maður á það til að fara svolítið á hælana þannig að það var mikill haus í þessu í dag. Það var svona það sem skilaði þessu,“ sagði Lovísa um leik kvöldsins.

Situr ennþá í okkur

Um sannkallaðan liðsheildarsigur var að ræða hjá Val þar sem allir útispilarar liðsins nema tveir komust á blað.

„Algjörlega. Allir sem koma inn á leggja sitt af mörkum og gefa eitthvað til liðsins. Við náum að rúlla rosalega vel á liðinu sem er frábær kostur. Það komu allir inn á og gerðu sitt besta. Það er bara frábært,“ sagði hún.


Valur er ennþá brenndur af því að hafa fallið úr keppni í undanúrslitum bikarkeppninnar á síðasta tímabili og eru liðsmenn því staðráðnir í að sigra Hauka í úrslitum á laugardag.

„Það situr ennþá í okkur og núna erum við að fara að keppa á móti sterku liði Hauka, sem eru nú á heimavelli og hafa smá aukalega hvatningu. En ég vona svo innilega að margir Valsarar komi hérna og styðji við bakið á okkur eins og í kvöld.

Það var frábært að heyra bongó í stúkunni og ég er spennt fyrir slagnum á laugardaginn. Þetta verður hörku, hörkuleikur þannig að allir að mæta,“ sagði Lovísa Thompson í samtali við handbolta.is.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -