„Upp úr stendur frábær árangur á Evrópumótinu. Þegar litið er um öxl til síðustu ára, jafnvel aftur til síðustu 16 ára, getur maður verið ánægður með fjórða sætið. Hins vegar er það svo að þegar maður kemst svona nærri verðlaunum, hafandi náð góðri frammistöðu í síðustu tveimur leikjunum, er fúlt að hafa ekki krækt í verðlaun. Það situr í manni,“ segir Snorri Steinn Guðjónsson í viðtali við handbolta.is þar sem hann gerir aðeins upp nýliðið Evrópumót þar sem íslenska landsliðið hafnaði í fjórða sæti og komst í undanúrslit stórmóts í fyrsta sinn í 16 ár.
Ræðir við HSÍ á næstu dögum
Snorri Steinn hefur vinnu í næstu viku við greiningu á leikjum íslenska liðsins og frammistöðu þess á mótinu. Samhliða sest hann niður með stjórnendum HSÍ vegna nýs starfssamnings. Núverandi starfssamningur rennur sitt skeið á enda í vor.
Fyrstu dagarnir eftir heimkomu á mánudagskvöld hafa farið í að safna kröftum að lokinni mánaðalangri törn þar sem ekkert komst annað að en handbolti og næstu leikir.
Fyrir mótið fann ég strax að það var ákveðinn bragur á mönnum. Einbeitingin var mikil. Þessi andi sveif áfram í gegnum allt mótið
Alls ekki endastöð
„Auðvitað á landsliðið ekki að líta á árangurinn á EM sem einhverja endastöð enda held ég að það geri ekki nokkur maður innan hópsins. Vonandi var þetta bara fyrsti hjallinn sem landsliðið kemst yfir og að næst takist að fara yfir fleiri hjalla,“ segir Snorri Steinn sem var að ljúka sínu þriðja stórmóti með landsliðið.

Vísbendingar fyrir ári
„Þegar litið er til HM í fyrra var margt í því móti sem benti til þess að við værum á réttri leið þótt litið sé til sætis hafi niðurstaðan ekki verið eins góð og að þessu sinni. Við unnum fimm af sex leikjum okkar á HM. Spilamennska okkar á HM fyrir ári benti til þess að við værum á réttri leið. Frá mínum bæjardyrum voru uppi vísbendingar eftir HM í fyrra að við ættum möguleika á að fara lengra á EM 2026,“ segir Snorri Steinn.

Tókst að klífa veggi
„Margt í ferli landsliðsins á EM er ég ánægður með. Á þessu móti tókst strákunum að klífa marga veggi eða brjótast í gegnum. Margt gekk á sem þurfti að eiga við. Slíkur ferill styrkir yfirleitt lið,“ segir Snorri Steinn og bætir við:
Vægi Elvars Arnar í hópnum er gríðarlegt, jafnt í vörn sem sókn
Geta verið stoltir
„Heilt yfir er ég ánægður með strákana. Þeir geta verið stoltir af árangrinum sem þeir náðu en ég skil vel að þeir séu svekktir að hafa ekki náð lengra.
Fyrir mótið fann ég strax að það var ákveðinn bragur á mönnum. Einbeitingin var mikil. Þessi andi sveif áfram í gegnum allt mótið, bæði þegar vel gekk og þegar við lentum í rússíbanareið þegar á mótið leið. Mér fannst allir vera á sömu blaðsíðu frá byrjun til enda, á hverju sem gekk.“
Högg fyrir okkur að missa Elvar
Snorri Steinn segir það hafa verið landsliðinu mikið áfall að missa út Elvar Örn Jónsson meiddan í þriðja leik mótsins. Elvar Örn er einstaklega mikilvægur hlekkur í keðju landsliðsins.

„Vægi Elvars Arnar í hópnum er gríðarlegt, jafnt í vörn sem sókn. Hann er fyrsti maður á blaði hjá manni þegar hópur er valinn hverju sinni. Þótt ég hafi ekki mikið rætt um það á meðan mótið stóð yfir þá voru meiðsli Elvars Arnar högg fyrir okkur sem varð ef til vill til þess að okkur skorti stöðugleika í vörninni,“ segir Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari í viðtali við handbolta.is.



