Vonir TMS Ringsted á sæti í úrslitakeppni átta efstu liða dönsku úrvalsdeildarinnar dofnuðu verulega þegar liðið tapaði fyrir lærisveinum Arnórs Atlasonar í TTH Holstebro, 31:30, á heimavelli í næstsíðustu umferð deildarinnar í kvöld.
Holstebro eygir möguleika á fjórða sætinu eftir sigurinn vegna þess að Skjern náði aðeins öðru stiginu í heimsókn til Skanderborg AGF, 30:30. Skjern er stigi fyrir ofan TTH Holstebro. Skanderborg er í fínum málum í öðru sæti. Donni skoraði eitt mark í leiknum í kvöld.
Holstebro fær Skanderborg í heimsókn í síðustu umferð deildarinnar á laugardaginn.
Sex íslensk mörk
Guðmundur Bragi Ástþórsson skoraði fjögur mörk og gaf fjórar stoðsendingar fyrir TMS Ringsted í tapleiknum fyrir Holstebro. Ísak Gústafsson skoraði tvö mörk og gaf tvær stoðsendingar.
Jóhannes Berg Andrason skoraði ekki mark fyrir TTH Holsbro. Hann átti eina stoðsendingu.



