- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Vorum í vandræðum í alltof mörgum þáttum leiksins

- Auglýsing -

„Það eru mikil vonbrigði að tapa þessum leik þótt það sé engin skömm að tapa fyrir færeyska landsliðinu á heimavelli þess. Færeyska liðið er sterkt en það er svekkjandi hvernig við fórum í gegnum leikinn,“ sagði Arnar Pétursson landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik er handbolti.is náði af honum tali eftir fimm marka tap íslenska liðsins í Þórshöfn í kvöld, 35:30. Með tapinu þá er það ekki lengur í höndum íslenska landsliðsins að tryggja sér sæti í lokakeppni EM. Hvort sigur gegn Portúgal í lokaumferðinni á sunnudag nægir skýrist annað kvöld, að lokinni viðureign Portúgala og Svartfellinga. Svartfellskur sigur verður vatn á myllu íslenska liðsins.


„Frammistaðan var vonbrigði og eitthvað sem við verðum að fara vel yfir og læra af. Hún er þvert á leiki okkar í síðasta glugga sem var heilt yfir mjög sterkur hjá okkur.

Við vorum í vandræðum í alltof mörgum þáttum leiksins í kvöld. Fyrir fram töldum við okkur hafa dregið lærdóm af síðustu viðureignum við færeyska liðið en því miður þá tókst okkur ekki gera það sem við ætluðum okkur þegar á hólminn var komið. Hverju sem um er að kenna.

Við töpuðum of mörgum bardögum í vörninni og náðum ekki að virkja hjálparvörnina sem varð til þess að allt varð erfiðara,“ sagði Arnar sem var skiljanlega daufur í dálkinn.

Slæmt tap í Færeyjum – bíða þarf morgundagsins

Ekki í okkar höndum

„Framhaldið er ekki í okkar höndum eftir tapið. Það er aldrei gott að vera í þeirri stöðu að þurfa að treysta á aðra. Það skýrist annað kvöld hverjir möguleikar okkar verða. Fyrir okkur kemur bara eitt til greina og það er að halda áfram. Við erum í miðju verkefni. Fram undan er heimferð og undirbúningur fyrir leikinn við Portúgal á sunnudaginn,“ sagði Arnar Pétursson landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik, í viðtali við handbolta.is.

Undankeppni EM kvenna ”26: Úrslit leikja

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -