- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Wolff ekki í hópnum hjá Alfreð

- Auglýsing -

Andreas Wolff, markvörður THW Kiel og þýska landsliðsins, er ekki í nýjasta landsliðshópi Alfreðs Gíslasonar fyrir tvo vináttulandsleiki gegn Egyptalandi síðar í mánuðinum. Á því eru þó eðlilegar skýringar.

Í tilkynningu frá þýska handknattleikssambandinu segir einfaldlega að Wolff muni gefa eftir sæti sitt í hópnum til þess að greiða götur varamarkvarðarins David Späth hjá Rhein-Neckar Löwen og nýliðans Lasse Ludwig úr herbúðum Füchse Berlín.


Ludwig er eini nýliðinn í þýska hópnum sem Alfreð hefur valið en annars eru 15 af þeim leikmönnum sem höfnuðu í öðru sæti á EM 2026 í síðasta mánuði í hópnum. Þar var Wolff útnefndur besti markvörður mótsins.

Nils Lichtlein og Rune Dahmke detta út og kemur Tim Freihöfer inn í leikmannahópinn.

Þýskaland mætir Egyptalandi í Dortmund fimmtudaginn 19. mars og svo aftur í Bremen sunnudaginn 22. mars.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -