- Auglýsing -
Aðalstjórn ÍBV-íþróttafélags sendi í kvöld frá sér snarpa yfirlýsingu vegna fréttaflutnings af Kára Kristjáni Kristjánssyni handknattleiksmanni sem ekki fær nýjan samning við handboltalið félagsins.
„ÍBV-íþróttafélag harmar að viðræður við Kára Kristján hafi ekki gengið sem skyldi. Félagið áréttar að ávallt séu tvær hliðar á öllum málum og tjáir sig ekki frekar um einstök samningsmál.
Við óskum Kára velfarnaðar í framtíðinni og þökkum fyrir hans framlag til félagsins.
Aðalstjórn ÍBV-íþróttafélags.“
- Auglýsing -