Landslið Íslands og Færeyja í flokki 15 ára stúlkna mætast í tveimur æfingaleikjum í Safamýri á morgun og á sunnudag. Stelpurnar, sem fæddar eru 2010, eru að leika sína fyrstu opinberu landsleiki.
Fyrri leikurinn hefst kl 16 á morgun, laugardag. Síðari leikurinn byrja kl. 14 á sunnudag.
Þjálfarar íslenska liðsins eru Hildur Þorgeirsdóttir og Sigríður Unnur Jónsdóttir. Þær völdu fyrir nokkru 17 stúlkur til æfinga og leikjanna tveggja.
Leikmenn:
Aníta Ottósdóttir, HK
Anja Gyða Vilhelmsen, Víkingi.
Brynja Sif Gísladóttir , Fram.
Emilía Guðný Magnúsdóttir, HK.
Erna Ómarsdóttir, FH.
Freyja Sveinbjörnsdóttir, Víkingi.
Helga Jenný Vigfúsdóttir, HK.
Hjördís Gauja Kjartansdóttir, Selfossi.
Hrefna Dís Valgeirsdóttir, Danmörku.
Iðunn Erla Mýrdal Helgadóttir, Val.
Katrín Ásta Jóhannsdóttir, ÍR.
Sara Birna Guðjónsdóttir, Haukum.
Sara Sigurvinsdóttir, Val.
Sara Sveinsdóttir, Val.
Soffia Helen Sölvadóttir, Gróttu.
Sylvía Sigrún Eðvarsdóttir, Gróttu.
Tanja Harðardóttir, ÍBV.
17 ára landsliðin til Færeyja
Eftir viku tekur 17 ára landslið karla þátt í Opna Nordic-mótinu sem fram í Færeyjum. Auk landsliða Íslands og Færeyja spreyta sig landslið frá Sviss og Þýskalandi.
Dagana 14. og 15. júní leikur 17 ára landslið kvenna tvisvar við færeyska landsliðið ytra.