- Auglýsing -
- Auglýsing -

Monthly Archives: October, 2023

Síminn sendir út fyrstu landsleiki Snorra Steins – RÚV hafði ekki áhuga

Fyrstu landsleikir karlalandsliðsins í handknattleik undir stjórn Snorra Steins Guðjónssonar verða sendir út í sjónvarpi Símans. Viðureignirnar verða við Færeyinga og fara fram í Laugardalshöll 3. og 4. nóvember. Eftir því sem handbolti.is kemst næst afþakkaði RÚV að sýna...

Sætaskipti eftir sigur Hauka á Ásvöllum

Haukar lögðu Aftureldingu, 27:23, á Ásvöllum í kvöld og höfðu um leið sætaskipti við lið Mosfellinga í Olísdeild karla. Hafnarfjarðarliðið færðist upp í þriðja sæti með 10 stig meðan Aftureldingarmenn sitja eftir með sárt ennið og níu stig í...

Alfreð hefur valið 19 leikmenn í mikilvæga leiki

Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari Þýskalandi í handknattleik karla hefur valið 19 leikmenn til æfinga og síðan til þátttöku í tveimur vináttuleikjum Þýskalands og Egyptalands í Neu-Ulm og München 3. og 5. nóvember. Leikirnir eru afar mikilvægur hluti í undirbúningi þýska...

Myndskeið: Bjarki Már á meðal þeirra bestu

Bjarki Már Elísson, landsliðsmaður og leikmaður Telekom Veszprém stimplaði sig inn í Meistaradeild Evrópu í síðustu viku þegar hann lék sinn fyrsta leik með liðinu sínu á leiktíðinni. Óhætt er að segja að Bjarki Már hafi minnt hressilega á...

Elliði Snær er með fullt hús í liði umferðarinnar

Elliði Snær Viðarsson, leikmaður Gummersbach, er vitanlega í úrvalsliði 9. umferðar þýsku 1. deildarinnar í handknattleik sem kynnt var til sögunnar í gærmorgun, þriðjudag, eftir að síðasta leik umferðinnar lauk á mánudagskvöld. Ekki er nóg með að Elliði Snær...

Dagskráin: Hörkuleikur á Ásvöllum – tendrað á ný upp í grillinu

Tveir leikir fara fram í kvöld í keppni meistaraflokka á Íslandsmótinu í handknattleik. Annars vegar mætast Haukar og Afturelding í Olísdeild karla á Ásvöllum klukkan 18. Hinsvegar leiða ungmennalið Vals og Grótta saman kappa sín í Grill 66-deild kvenna...

Molakaffi: Teitur, Óðinn, Heiðmar, Viktor, Stiven, Tryggvi, Orri, Arnór, Ýmir, Þórir

Í gær skoraði Teitur Örn Einarsson sjö mörk fyrir Flensburg annan leikinn í röð þegar liðið vann Kadetten Schaffhasuen 46:32, í fyrstu umferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar í handknattleik. Leikið var í Flens-Arena. Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði fjögur mörk fyrir Kadetten. Heiðmar...

„Mér líður bara eins og ég hafi tapað“

„Þetta er alveg glatað því við áttum sigurinn svo ógeðslega mikið skilinn,“ sagði vonsvikinn þjálfari Stjörnunnar, Hrannar Guðmundsson, þegar handbolti.is hitti hann að máli eftir jafntefli við FH, 34:34, í upphafsleik 7. umferðar Olísdeildar karla í Mýrinni í kvöld....

Fyrrverandi stórskytta tryggði annað stigið á síðustu sekúndu

Jón Bjarni Ólafsson tryggði FH annað stigið gegn Stjörnunni í viðureign liðanna í 7. umferð Olísdeildar karla í handknattleik í Mýrinni í Garðabæ í kvöld. Jón Bjarni jafnaði metin með ævintýralegu skoti eftir sendingu Arons Pálmarssonnar á síðustu sekúndu...

Evrópudeild karla ’23 – úrslit 1. umferðar

Fyrsta umferð riðlakeppni Evrópudeildar karla í handknattleik fór fram í kvöld. Nokkrir íslenskir handknattleiksmenn voru í eldlínunni með félagsliðum sínum í leikjum kvöldsins. A-riðill:IFK Kristianstad - Rhein-Neckar Löwen 20:26 (10:13).- Hvorki Arnór Snær Óskarsson né Ýmir Örn Gíslason skoruðu mark...
- Auglýsing -

Nýjustu fréttir

Handboltahöllin: Þetta er Robbi Gunn „special“

Það var um margt að fjalla í Handboltahöllinni á Handboltapassanum á mánudagskvöld þar sem gera þurfti upp þrjár heilar...
- Auglýsing -