Hinn efnilegi handknattleiksmaður Fram, Reynir Þór Stefánsson, æfði með þýska liðinu Gummersbach í Kaplakrika í hádeginu á mánudaginn, daginn fyrir viðureign liðsins við FH. Reynir Þór sagði í skilaboðum til handbolta.is að vegna meiðsla í leikmannahópi Gummersbach hafi honum...
Leikur Vals og FC Porto í Evrópdeildinni í handknattleik karla í Kaplakrika í gærkvöldi var mikil og góð skemmtun en einnig kaflaskiptur. Porto var sjö mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 16:9.
Valsmenn komu eins og grenjandi ljón til leiks...
Einn af stærri og glæsilegri handknattleiksviðburðum sem fram hefur farið hér á landi í seinni tíð var haldinn í Kaplakrika þegar FH og Valur lögðust á árar og buðu upp á sameiginlegt Evrópukvöld í handknattleik. Um leið var haldið...
Sjötta umferð Olísdeildar kvenna í handknattleik hefst í kvöld með þremur leikjum en þetta er síðasta umferðin í deildinni í bili. Um helgina kemur kvennalandsliðið saman til æfinga vegna tveggja vináttuleikjum við Pólverja um aðra helgi.
Einnig hefst sjöunda umferð...
Elías Már Halldórsson hefur ákveðið að láta af starfi þjálfara norska úrvalsdeildarliðsins Fredrikstad Bkl. í lok þessa keppnistímabils. Þetta kemur fram í tilkynningu hans og félagsins í morgun. Elías Már tók við þjálfun Fredrikstad Bkl. árið 2021 og hefur...
Efsta lið þýsku 2. deildarinnar í handknattleik karla, Bergischer HC sem Arnór Þór Gunnarsson þjálfar, tapaði illa fyrir Eulen Ludwigshafen, 32:23, í Ludwigshafen í gærkvöld. Bergischer HC átti á brattann að sækja allan leikinn og var m.a. fimm mörkum...
Önnur umferð riðlakeppni Evrópudeildar karla, 32-liða úrslit fór fram í dag og í kvöld. Leikið er í átta riðlum með fjórum liðum í hverjum. Alls fara fram sex umferðir. Tvö efstu lið hvers riðils þegar upp verður staðið halda...
FH-ingar fengu slæma útreið hjá þýska liðinu Gummersabach í viðureign liðanna í Kaplakrika í kvöld í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í handknattleik karla og það á sjálfan 95 ára afmælisdag Fimleikafélags Hafnarfjarðar. Nítján mörk skildu liðin að þegar frá var horfið...
Björgvin Páll Gústavsson átti stórleik í síðari hálfleik gegn Porto í kvöld. Hann fór hreinlega hamförum í síðari hálfleik, varði 13 skot, 55%, auk þess að skora þrjú mörk í 27:27 jafntefli Valsmanna sem fengu þar með sitt fyrsta...
Íslandsmeistarar Vals í handknattleik kvenna mætir Íslendingaliðinu Kristianstad HK í 32-liða úrslitum Evrópubikarkeppni kvenna í handknattleik. Fyrri leikurinn verður á heimavelli Vals 9. eða 10. nóvember og síðari viðureignin ytra viku síðar ef liðin kjósa að leika heima og...