- Auglýsing -
- Auglýsing -

Monthly Archives: August, 2025

Fimmtán marka sigur Hauka á Þór

Haukar unnu stórsigur á Þór, 35:20, á Hafnarfjarðarmóti karla í handknattleik í Kaplakrika í kvöld. Um var að ræða annan sigur Hauka á mótinu og því hafa þeir unnið mótið að þessu sinni þótt enn sé einni viðureign ólokið,...

Sannfærandi sigur HK-inga á Víkingum

HK vann sannfærandi sigur á Víkingi í þriðja og síðasta leik liðanna á Ragnarsmóti karla í handknattleik í Sethöllinni á Selfossi í kvöld. Lokatölur, 30:24, eftir að þremur mörkum skeikaði á liðunum þegar fyrri hálfleikur var að baki, 14:11,...

Söknuðu eftirlitsmanns – ekki frávik frá venjubundnu verklagi

Glöggir áhorfendur og jafnvel þátttakendur í viðureign Fram og Stjörnunnar í meistarakeppni karla í handknattleik í gærkvöld söknuðu þess að ekki væri eftirlitsmaður á leiknum, eins og oft er viðureignum í liða í efstu deildum karla og kvenna á...

Unglingalandsliðin eru í sjötta sæti í Evrópu

Íslensku unglingalandsliðin, karla og kvenna, eru í sjötta sæti á stigalista Handknattleikssambands Evrópu þegar öll yngri landsliðamót sumarsins eru gerð upp og lögð saman. Spánverjar eru í efsta sæti, Danir í öðru sæti og Svíar í þriðja sæti. Ungverjar,...

Þjálfari Viborg hefur óvænt tekið hatt sinn og staf

Ole Bitsch sagði í morgun óvænt upp störfum sem þjálfari danska úrvalsdeildarliðsins Viborg. Talið er uppsögnin tengist þeirri ólgu sem ríkt hefur innan félagsins síðstu vikur. Alltént má lesa það á milli línanna í tilkynningu Bitsch. Aðeins er...

Mandic mættur í herbúðir Evrópumeistaranna

Evrópumeistarar SC Magdeburg hafa klófest króatíska landsliðsmarkvörðinn Matej Mandic ári fyrr en til stóð. Ástæðan er sú að svissnesku landsliðsmarkvörðurinn Nikloa Portner situr af sér keppnisbann til 10. desember vegna notkunnar á ólöglegum lyfjum. Kemur ári fyrr en ella Til stóð...

Nú fer hver að verða síðastur

Tilkynning frá Handknattleikssambandi Íslands: Nú fer hver að verða síðastur að næla sér í miða í frátekin íslensk sæti á Evrópumótinu í handknattleik karla í Svíþjóð næstkomandi janúar.   Ísland leikur með Ítölum, Póllandi og Ungverjalandi í F-riðli í Kristianstad og fer síðan til Malmö í milliriðli. Það...

Dagskráin: Leikið verður á Selfossi og í Hafnarfirði

Áfram verður leikið á Ragnarsmóti karla og kvenna í handknattleik í kvöld. Einnig koma Þórsarar suður frá Akureyri og mæta Haukum á Hafnarfjarðarmóti karla í Kaplakrika. Þór gerir stans í Hafnarfirði vegna þess að á morgun mætir Þór liði...

Molakaffi: Elvar, Guðmundur, Ágúst, uppselt, Hansen

Elvar Ásgeirsson skoraði fimm mörk og var næst markahæstur þegar Ribe-Esbjerg lagði Fredericia HK, 32:30, í æfingaleik í gær. Keppni í dönsku úrvalsdeildinni í karlaflokki hefst á miðvikudaginn. Upphafsleikur Fredericia HK, sem Guðmundur Þórður Guðmundsson þjálfar, verður þó ekki...

Ýmir Örn hefur skrifað undir lengri samning

Ýmir Örn Gíslason landsliðsmaður í handknattleik hefur framlengt samning sinn við þýska 1. deildarliðið Frish Auf! Göppingen sem gildir til ársins 2028. Félag segir frá þessum gleðilegu tíðindum í kvöld. Ýmir Örn, sem er fyrirliði Göppingen, kom til félagsins...
- Auglýsing -

Nýjustu fréttir

Dagskráin: Hvaða lið komast í undanúrslit?

Átta liða úrslit bikarkeppni HSÍ fara fram í kvöld. Fjórar viðureignir sem hefjast með hálftíma millibili. Sigurliðin leika til...
- Auglýsing -