- Auglýsing -
- Auglýsing -

Monthly Archives: February, 2026

Hætti ekki að gefa kost á mér í landsliðið meðan ég spila handbolta

„Ég ber svo mikla virðingu fyrir íslenska landsliðinu að ég mun ekki hætta að gefa kost á mér í landsliðið svo lengi sem ég spila handbolta,“ sagði Björgvin Páll Gústavsson landsliðsmarkvörður í handknattleik spurður að leikslokum á Evrópumótinu í...

Danmörk Evrópumeistari í fyrsta sinn í 14 ár

Danmörk tryggði sér í kvöld Evrópumeistaratitil karla á heimavelli með því að leggja Þýskaland, sem Alfreð Gíslason þjálfar, 34:27 í úrslitaleik í Jyske Bank Boxen í Herning í kvöld. Alfreð og Þjóðverjar gera sér því silfrið að góðu. Er þetta...

EM karla 26 – úrslitahelgin – leikir, leiktímar, úrslit

Leikið verður til undanúrslita og úrslita á Evrópumóti karla í handknattleik í Jyske Bank Boxen í Herning á föstudag og sunnudag. Einnig verður leikið um fimmta sæti mótsins sem þjónar e.t.v. ekki miklum tilgangi þótt það sé gert þar...

Myndasyrpa: Evrópumótið kvatt eftir tap fyrir Króatíu

Ísland hefur lokið leik á Evrópumóti karla í Danmörku, Svíþjóð og Noregi. Ísland tapaði bronsleiknum í Herning í Danmörku í dag og hafnar því í fjórða sæti. Þrátt fyrir að vera undir allan leikinn gafst íslenska liðið ekki upp og...

„Mjög stoltur að vera hluti af þessu liði“

„Þetta var einhvern veginn svolítið endurtekið efni, fyrri hálfleikurinn, eins og þetta var í Malmö. Við vorum aðeins of linir,“ sagði Gísli Þorgeir Kristjánsson í samtali við handbolta.is eftir eins marks tap Íslands fyrir Króatíu í bronsleik EM í...

Á eftir að svíða og taka tíma að vinna úr þessu

„Auðvitað er ég sár og svekktur eins og strákarnir. Það vantaði bara aðeins upp á í dag,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari við handbolta.is eftir eins marks tap Íslands fyrir Króatíu í bronsleik EM í Herning í Danmörku í...

Mikið áfall fyrir heimsmeistarana

Heimsmeistarar Danmerkur hafa orðið fyrir miklu áfalli fyrir úrslitaleik Evrópumóts karla gegn Þýskalandi sem hefst klukkan 17 í Jyske Bank Boxen í Herning í Danmörku í dag. Simon Hald getur ekki tekið þátt í leiknum vegna meiðsla. Hald hlaut höfuðhögg...

„Okkur langaði að taka þriðja sætið“

„Við vorum bara eftir á allan tímann og náðum ekki að spila okkar leik,“ sagði svekktur Ómar Ingi Magnússon, fyrirliði Íslands, í samtali við handbolta.is eftir eins marks tap fyrir Króatíu í leiknum um bronsverðlaunin í Herning í Danmörku...

Draumurinn varð að engu – Króatar lina ekki tak sitt

Draumur íslenska landsliðsins um bronsverðlaun á Evrópumótinu í handknattleik karla varð að engu í dag þegar liðið tapaði fyrir Króatíu, 34:33, í Jyske Bank Boxen á Jótlandi. Enn og aftur voru Dagur Sigurðsson og liðsmenn hans öflugri þegar á...

Wolff tekur upp hanskann fyrir Alfreð

Andreas Wolff, markvörður Þýskalands, skilur ekkert í gagnrýni í garð Alfreðs Gíslasonar sem ákvað að láta David Späth spila nánast allan leikinn þegar Þýskaland og Danmörk mættust í milliriðli í síðustu viku. Danir unnu þann leik og komst Späth...
- Auglýsing -

Nýjustu fréttir

Dregið í riðla undankeppni EM karla síðar í dag

Síðar í dag kemur í ljós hverjir verða andstæðingar íslenska landsliðsins í undankeppni Evrópumóts karla í handknattleik sem fram...
- Auglýsing -