- Auglýsing -
- Auglýsing -

Monthly Archives: March, 2026

Sigvaldi Björn hefur samið við Hannover-Burgdorf

Sigvaldi Björn Guðjónsson, landsliðsmaður í handknattleik, flytur til Þýskalands í sumar. Hann hefur samið við Hannover-Burgdorf í þýsku 1. deildinni og er ætlað að fylla skarð hægri hornamannsins og fyrirliðans, Marius Steinhauser, sem ákveðið hefur að gerast liðsmaður Rhein-Neckar...

Daniel eltir bróður sinn til Þýskalands

Spænski handknattleiksmaðurinn Daniel Dujshebaev og sonur þjálfarans öfluga, Talants Dujshebaev, verður samherji Reynis Þórs Stefánssonar hjá þýska liðinu MT Melsungen á næstu leiktíð. Dujshebaev, sem árum saman hefur leikið undir stjórn föður síns hjá Indurstria Kielce, samdi við MT...

Handboltahöllin: Enn einu sinni með tólf mörk

Í Handboltahöllinni á Handboltapassanum á mánudagskvöld fóru þáttastjórnandinn Hörður Magnússon og sérfræðingarnir Rakel Dögg Bragadóttir og Ásbjörn Friðriksson yfir þægilegan sigur ÍR á KA/Þór í 19. umferð Olísdeildar kvenna. „Enn eitt skiptið sem hún er með tólf mörk,“ sagði Ásbjörn...

Alfreð vill gjarna framlengja í Þýskalandi

Alfreð Gíslason, þjálfari þýska karlalandsliðsins, fer ekki í grafgötur með það að hann vilji halda starfi sínu áfram eftir HM 2027 í Þýskalandi. Samningur Alfreðs rennur út eftir mótið í lok janúar á næsta ári. „Ég hef aldrei farið leynt...

Dagskráin: Næst síðasta umferð í kvöld

Leikir næstsíðustu umferðar Olísdeildar kvenna fara fram í kvöld. Þegar er ljóst að Valur er deildarmeistari og fer beint í undanúrslit úrslitakeppninnar um Íslandsmeistaratitilinn. ÍBV hafnar í öðru sæti og fylgir Valskonum beint í undanúrslitin.Fjögur lið í sætum þrjú...

HK er með pálmann í höndunum

HK heldur tveggja stiga forskoti í efsta sæti Grill 66-deildar handknattleik kvenna hefur þar með pálmann í höndunum fyrir lokaumferðina á sunnudaginn. HK lagði FH með 10 marka mun í Kaplakrika, 29:19, í kvöld. Sigurinn var afar öruggur og...

Horfum fram á veginn – tíminn er fljótur að líða

„Ég finn að það ríkir eftirvænting meðal strákanna að fá svo sterkt landslið í heimsókn til okkar stuttu eftir EM. Þar fyrir utan erum við farnir að horfa fram á veginn og til þess sem tekur við,“ segir Snorri...

Skemmtilegasta sem maður gerir er að spila handbolta

„Eftir krefjandi byrjun þá er maður kominn á fulla ferð. Ég reyni bara að nýta hvert tækifæri sem gefst sem best til þess að bæta mig,“ segir Reynir Þór Stefánsson leikmaður sem hefur verið í vaxandi hlutverki hjá þýska...

Janus Daði hefur ekki jafnað sig af axlarmeiðslum

Óvíst er með hversu mikið Janus Daði Smárason tekur þátt í vináttulandsleikjunum við Svía á fimmtudaginn og laugardaginn. Hann hefur ekki jafnað sig fyllilega af axlarmeiðslum sem hann varð fyrir í viðureigninni við Króata um bronsverðlaunin á Evrópumótinu í...

Landsliðsmenn hitta landsmenn í Smáralind

Leikmenn karlalandsliðsins í handknattleik verða í Smáralind frá klukkan 16.30 í dag þar sem þeir hitta landsmenn og veita m.a. eiginhandaráritanir. Nær allir leikmenn landsliðsins leika utan landsteinanna og eru heima í fyrsta sinn frá því að þeir tóku...
- Auglýsing -

Nýjustu fréttir

Handbolti.is – sögulok

Að vandlega hugsuðu máli er ákveðið að rekstri handbolti.is verði hætt í dag, mánudaginn 1. júní 2026. Ákvörðunin var...
- Auglýsing -