- Auglýsing -
- Auglýsing -

Monthly Archives: March, 2026

Serbía, Úkraína og Eistland verða andstæðingar Íslands

Íslenska karlalandsliðið í handknattleik dróst í riðil þrjú með Serbíu, Úkraínu og Eistlandi í undankeppni EM 2028. Dregið var í riðla undankeppninnar í Lissabon í kvöld. Ísland var í efsta styrkleikaflokki. Undankeppnin hefst í nóvember og lýkur í maí...

Chiseliov yfirgefur Þórsara

Igor Chiseliov, leikmaður Þórs á Akureyri, mun ekki spila áfram með liðinu á næsta tímabil. Samningur hans rennur út í sumar og verður ekki endurnýjaður. Jason Orri Geirsson, meðstjórnandi í stjórn handknattleiksdeildar Þórs, skýrði frá þessu í samtali við Handkastið. Chiseliov...

Janus Daði: „Líklega stærsta félag heims“

Landsliðsmaðurinn Janus Daði Smárason er ansi spenntur fyrir því að ganga til liðs við spænska stórveldið Barcelona í sumar, þar sem hann skrifaði undir þriggja ára samning. Í dag var staðfest að Janus Daði fari frá ungverska félaginu Pick...

Textalýsing: Dregið í riðla undankeppni EM karla 2028

Hafist verður handa við að draga í riðla fyrir undankeppni EM karla 2028 upp úr klukkan 18. Athöfnin fer fram í Lissabon en Portúgal verður gestgjafi lokakeppni EM 2028 ásamt Spáni og Sviss. Undankeppnin hefst í byrjun nóvember og...

Myndskeið: Undrabarnið skoraði sigurmark frá miðju

Slóvenska undrabarnið Aljuš Anžič, sem sumir kalla sem svo en hann er aðeins á átjánda ári, skoraði sigurmark RK Celje í gærkvöld, 31:30, gegn Krka í úrslitakeppninni um meistaratitilinn í Slóveníu. Anžič var ekkert að tvínóna þegar hann kastaði...

Dregið í riðla undankeppni EM karla síðar í dag

Síðar í dag kemur í ljós hverjir verða andstæðingar íslenska landsliðsins í undankeppni Evrópumóts karla í handknattleik sem fram fer í Portúgal, Spáni og Sviss í janúar 2028. Dregið verður í Lissabon, höfuðborg Portúgal, og verður hafist handa klukkan...

Landsliðshópurinn hefur verið valinn

Arnar Pétursson landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik hefur valið 16 leikmenn til þess að taka þátt í tveimur síðustu leikjum íslenska landsliðsins í undankeppni Evrópumótsins 8. og 12. apríl, gegn Færeyingum ytra og Portúgal hér heima. Harpa María Friðgeirsdóttir leikmaður Fram...

Beint: Arnar velur landsliðið fyrir tvo síðustu leikina

Handknattleikssambandið stendur fyrir blaðamannafundi klukkan 13 í húsnæði Arion banka í Borgartúni. Á fundinum tilkynnir Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik, landsliðshópinn sem hann hefur valið til þess að mæta Færeyingum og Portúgölum í tveimur síðustu umferðum undankeppni Evrópumóts...

Virðist hafa látið kappið bera fegurðina ofurliði

Þannig lítur út að Einar Örn Jónsson starfsmaður Vals hafi látið kappið bera fegurðina ofurliði í viðureign HK 2 og Vals 2 í 3. flokki kvenna þann 17. mars. Hann var alltént úrskurðaður í eins leiks bann á fundi...

Tómas Bragi tekur stökkið úr Gróttu í HK

HK hefur tryggt sér annan leikmann fyrir næstu leiktíð í Olísdeild karla. Í morgun tilkynnti félagið að Tómas Bragi Lorriaux Starrason leikmaður Gróttu hefði ákveðið að söðla um og ganga til liðs við Kópavogsliðið. Fyrr í vikunni greindi HK...
- Auglýsing -

Nýjustu fréttir

Handbolti.is – sögulok

Að vandlega hugsuðu máli er ákveðið að rekstri handbolti.is verði hætt í dag, mánudaginn 1. júní 2026. Ákvörðunin var...
- Auglýsing -