Grænlenska landsliðskonan Ivâna Meincke hefur gengið til liðs við Olísdeildarlið Stjörnunnar í handknattleik kvenna. Meincke, sem er línumaður, þekkir vel til handknattleiks hér á landi eftir að hafa leikið með FH.
Auk FH hefur Meincke leikið fyrir GSS í Grænlandi, Gudme HK í Danmörku og VIF frá Vestmanna í Færeyjum. Hún var einn leikmanna grænlenska landsliðsins sem í vor tryggði sér sæti á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Danmörku, Noregi og í Svíþjóð og hefst í lok nóvember og stendur yfir fram yfir miðjan desember. Grænlenska landsliðið verður í riðli með heimsmeisturum Noregs, Suður Kóreu og Austurríkis.
Liðin eru 22 ár síðan grænlenska landsliðið tók síðast þátt í HM kvenna.
„Við bindum miklar vonir við hennar reynslu sem leikmaður og hlökkum til þess að taka á móti henni hér í Garðabænum á komandi tímabili,“ segir tilkynningu handknattleiksdeildar Stjörnunnar í dag.
Konur – helstu félagaskipti 2023