Stórskyttan Rúnar Kárason, línumaðurinn Marko Coric og markvörðurinn Lárus Helgi Ólafsson léku ekki með Fram í gær gegn ÍBV. Rúnar og Lárus Helgi voru og eru meiddir en Coric var heima rúmliggjandi vegna veikinda, að sögn Einars Jónssonar þjálfara Fram.
Rúnar var fyrir leikina í gærkvöld í 10. umferð Olísdeildar, markahæsti leikmaður deildarinnar. Hann er tognaður, væntanlega á fótlegg, en Einar gaf lítið upp. Eitthvað svipað mun hrjá Lárus Helga.
„Ég reikna ekki með að þetta sé alvarlegt hjá þeim en það skýrist væntanlega betur á næstu dögum,“ sagði Einar í samtali við handbolta.is í gærkvöld eftir tapleikinn fyrr ÍBV, 38:32, í Úlfarsárdal.
Coric verður væntanlega klæddur og kominn á ról eftir nokkra daga þegar hann verður búinn að hrista af sér veikindin en meðan er skarð fyrir skildi af fjarveru hans og Lárusar Helga og Rúnars.
Næstur leikur Fram í Olísdeild karla verður við Hauka á Ásvöllum fimmtudaginn 30. nóvember.
Tengt efni:
Hrikalega mikilvægur sigur – vængbrotnir Framarar
Þreyta og reynsluleysi varð okkur að falli
Staðan í Olísdeildum og næstu leikir.
10. umferð – samantekt – úrslit, markaskor, staðan