- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Á eftir að svíða og taka tíma að vinna úr þessu

- Auglýsing -

„Auðvitað er ég sár og svekktur eins og strákarnir. Það vantaði bara aðeins upp á í dag,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson landsliðsþjálfari við handbolta.is eftir eins marks tap Íslands fyrir Króatíu í bronsleik EM í Herning í Danmörku í dag.

„Eðlilega er færanýtingin kannski besta skýringin á því hvers vegna við missum þá strax fram úr okkur. Það er bara dýrt á móti liði eins og Króatíu.

Fjórða sætið niðurstaðan hjá Íslandi er Dagur hirti bronsverðlaunin

„Það eru fá lið sem eru jafn góð í að stjórna leikjum eins og þeir. Þeir gera það vel. Við reyndum að hleypa þessu upp og fengum leikinn að einhverju leyti í þann farveg sem við vildum,“ sagði Snorri Steinn.

En lendið í sama eltingaleik og síðast.

„Já, en það voru samt líka atriði varnarlega, í fyrri hálfleik sérstaklega, sem ég var óánægður með. Við vissum að það kæmi og við gerðum þetta ekki nægilega vel. Það situr líka aðeins í mér,“ bætti hann við.

Vilt meira þegar þú kemst svona nálægt

Ísland hrökk loks í gang undir lok leiksins.

„Ég tek ekkert af strákunum. Þeir voru frábærir í dag og lögðu líf og sál í þetta. Þetta er búið að vera erfitt og margar tilfinningar. Eins og oft áður í mótinu get ég ekki beðið um meira,“ sagði Snorri Steinn.

Viðurkenndi hann að það að missa af bronsverðlaununum væri afar sárt.

„Auðvitað er það sárt. Þegar þú kemst svona nálægt þessu þá viltu meira. Það á eftir að svíða og tekur tíma að vinna úr þessu,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson að lokum í samtali við handbolta.is.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -