Ungverski handknattleiksmaðurinn og leikstjórnandinn Péter Lukács kveður Elverum í sumar og gengur til liðs við Pick Szeged á tveggja ára samningi. Lukács er einn öflugasti leikmaður norska meistaraliðsins sem er efst í deildinni heima fyrir og er einnig í góðri stöðu í Evrópudeildinni. Lukács er einn markahæsti leikmaður Evrópudeildarinnar.
Ekki er útilokað að Lukács eigi að fylla skarð Janusar Daða Smárasonar sem gengur væntanlega til liðs við Barcelona í sumar. Þrálátur orðrómur hefur verið síðan í byrjun vetrar um að Janus Daði verði liðsmaður Barcelona eftir að núverandi samningur hans við Pick Szeged rennur sitt skeið á enda um mitt árið.
Lukács þekkir vel til í handboltanum í Ungverjalandi. Áður en hann söðlaði um og gekk til liðs við Elverum var hann m.a. í herbúðum PLER-Budapest, Ferencvárosi TC, og Veszprém.




