Dómstóll Handknattleikssambands Evrópu, EHF, hefur dæmt AEK í tveggja ára keppnisbann frá Evrópumótum félagsliða. Að auki verður félagið að greiða 20.000 evrur, jafnvirði rúmlega þriggja milljóna kr. í sekt.
Ástæða þess er að félagið neitað að leika síðari úrslitaleikinn við HC Alkaloid í Evrópubikarkeppni karla í handknattleik sem fram átti að fara sunnudaginn 25. maí.
Dómstóllinn segir að AEK hafi sýnt af sér grófa óíþróttamannslega framkomu með því að neita að taka þátt í leiknum. Áður hafði dómstóllinn dæmt HC Alkaloid sigur í leiknum og sagt AEK ekki eiga sér neinar málsbætur.

Leikmenn AEK voru mættir í keppnishöllina í Skopje til síðari leiksins þegar þeir hættu skyndilega við að leika. Sögðu þeir HC Alkaloid hafa brotið samkomulag um umsamdan miðafjölda til stuðningsmanna félagsins auk þess sem þeim hafi verið vísað frá landamærunum við komuna til Norður Makedóníu. EHF féllst ekkert á mótbárur gríska liðsins – ýtti þeim öllum út af borðinu.