- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Áfall fyrir Stjörnuna – Gauti úr leik

- Auglýsing -

Gauti Gunnarsson, hægri hornamaður Stjörnunnar, kemur ekki frekar við sögu með liðinu á yfirstandandi tímabili vegna ökklameiðsla sem hann varð fyrir í leik gegn Haukum í Olísdeildinni fyrir tveimur vikum.

Gauti sneri sig illa á ökkla og stóðu vonir til þess að hann gæti snúið aftur á keppnisvöllinn áður en langt um liði.

„Ég er ekki með neinar skýringar á þessu“

Í samtali við Handkastið staðfestir Gauti hins vegar að myndataka hafi leitt í ljós að hann megi búast við því að vera frá keppni næstu tvo til þrjá mánuðina.

Skammt er eftir af tímabilinu þar sem þrjár umferðir eru óleiknar í Olísdeildinni og úrslitakeppnin um Íslandsmeistaratitilinn hefst svo í lok mánaðarins.

Stjarnan er í harðri fallbaráttu en liðið er í 11. og næstneðsta sæti með tíu stig, einu stigi á eftir Selfossi og Þór Akureyri sem eru í sætunum fyrir ofan og þremur stigum fyrir ofan botnlið ÍR.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -