FH mætir Tatran Presov í 16-liða úrslitum Evrópubikarkeppni karla í handknattleik en Tatran-liðið lagði Aftureldingu í 32-liða úrslitum keppninnar á dögum. Valur, sem einnig var í pottunum þegar dregið var í 16-liða úrslit í morgun, mætir hinu forna stórveldi Metalopastika Sabach frá Serbíu.
Leikir 16-liða úrslita eiga að fara fram 10. og 11. febrúar og þeir síðari 17. og 18. febrúar. Svo skemmtilega vill til að 8-liða úrslit Poweradebikarkeppni karla eiga að fara fram 10 . og 11. mars svo ljóst er að eitthvað verður að hnika til leikdögum í Poweradebikarnum.
FH var í efri styrkleikaflokki þegar dregið var en Valur var í neðri flokknum. Íslensku liðin gátu dregist saman.
Eftirtalin lið drógust saman í morgun:
FH – Tatran Presov.
Valur – Metalopastika.
Minaur Baia Mare – Vogosca.
Slobada – Krka.
Steaua Búkarest – Karvina.
Valur – Metalopastika.
Krems – Bregenz.
Brixen – Olympiacos.
Besiktas – Green Collect.
FH mætti Tatran Presov fyrir sex árum í sömu keppni og féll þá naumlega úr keppni.