Ágúst Bjarni Garðarsson var kjörinn formaður handknattleiksdeildar FH á aðalfundi deildarinnar í gærkvöld. Síðla í janúar tilkynnti Ásgeir Jónsson formaður handknattleiksdeildar FH til síðustu 11 ára að hann ætlaði ekki að sækjast eftir endurkjöri á næsta aðalfundi.
Ásgeiri var veitt gullmerki FH í kveðjuskyni á aðfundinum og þökkuð vel unnin störf.
Í tilkynningu frá FH kemur fram að hinn nýi formaður, Ágúst Bjarni, hafi verið vikur félagsmaður í FH undanfarin ár. Hann er einnig fyrrverandi alþingismaður og núverandi formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar.
Þrjú önnur komu ný í stjórn deildarinnar; Birna Íris Helgadóttir, Gestur Steinþórsson og Tryggvi Rafnsson. Auk Ásgeirs stigu úr stjórn þau Auður Reykdal Runólfsdóttir, Sverrir Reynisson og Örn Eyfjörð Jónsson. Þeim var öllum þakkað vel unnin störf fyrir félagið.
Stjórn hkd. FH 2024-2025 er þannig skipuð:
Ágúst Bjarni Garðarsson, formaður.
Birna Íris Helgadóttir.
Gestur Steinþórsson.
Ísleifur Orri Arnarson.
Orri Björnsson.
Ólafur Guðlaugsson.
Pétur Þórarinsson.
Sigurður Örn Þorleifsson.
Tryggvi Rafnsson.
Ásgeir fráfarandi formaður hefur gefið kost á sér sem varaformaður HSÍ á ársþingi sambandsins 5. apríl.