- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Ágúst Elí hrósaði sigri í fyrsta leik sínum með KA

- Auglýsing -

Ágúst Elí Björgvinsson lék sinn fyrsta deildarleik hér á landi í átta ár í kvöld þegar hann varði mark KA í sjö marka sigri á ÍR, 37:31, í fyrsta leik liðanna á nýju ári. Leikurinn fór fram í Skógarseli. Flautað var til leiks í Olísdeildinni í kvöld með þremur viðureignum.

KA situr áfram í fimmta sæti deildarinnar, hefur nú 20 stig og er stigi á eftir FH sem lagði HK í baráttuleik í Kórnum. ÍBV er stigi á eftir KA. Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn gegn Selfossi í Eyjum, 40:28.


Ágúst Elí gekk til liðs við KA í upphafi ársins eftir að hafa leikið í nærri átta ár með félagsliðum í Danmörku og Svíþjóð. Ágúst Elí sýndi á tíðum lipurleg tilþrif í hröðum leik þar sem bæði lið lögðu ekki megináherslu á varnarleik. Þetta var hans fyrsti alvöru keppnisleikur síðan í byrjun október.

KA var fimm mörkum yfir í hálfleik, 18:13. Liðið var með yfirhöndina frá byrjun til enda.

Jens Bragi Bergþórsson og Einar Birgir Stefánsson klesstir saman. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð

Dagur var ekki með

Dagur Gautason, sem samdi einnig við KA í janúar, og batt enda á veru sína í Arendal, er meiddur og var ekki í eldlínunni í kvöld.

Bjarni Ófeigur Valdimarsson var eins og stundum áður atkvæðamikill hjá KA. Jens Bragi Bergþórsson var öflugur á línunni. Giorgi Arvelodi Dikhaminjia mætti til leiks og skoraði fimm mörk eftir að hafa leikið með landsliði Georgíu á EM.

Baldur Fritz Bjarnason sækir að vörn KA í leiknum í kvöld. Varnarmenn KA áttu í mestu vandræðum með að halda aftur af pilti. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð

Baldur Fritz Bjarnason var allt í öllu hjá ÍR og skoraði 15 mörk, nærri helming marka liðsins.

ÍR rekur áfram lestina í deildinni.

Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.

ÍR – KA 31:37 (13:18).

Mörk ÍR: Baldur Fritz Bjarnason 15, Jökull Blöndal Björnsson 6, Bernard Kristján Owusu Darkoh 3, Patrekur Smári Arnarsson 3, Elvar Otri Hjálmarsson 2, Bergþór Róbertsson 1, Örn Kolur Kjartansson 1.
Varin skot: Ólafur Rafn Gíslason 9, Alexander Ásgrímsson 5.

Mörk KA: Bjarni Ófeigur Valdimarsson 7, Jens Bragi Bergþórsson 6, Giorgi Arvelodi Dikhaminjia 5, Arnór Ísak Haddsson 5, Einar Birgir Stefánsson 3, Logi Gautason 3, Morten Linder 3, Magnús Dagur Jónatansson 2, Daði Jónsson 1, Einar Rafn Eiðsson 1, Smári Steinn Ágústsson 1.
Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson 8, Bruno Bernard 2.

Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -