- Auglýsing -
Sænska meistaraliðið Skara HF komst örugglega í átta liða úrslit sænsku bikarkeppninnar í handknattleik kvenna í gær. Skara vann Lugi örugglega, 38:27, á heimavelli. Samanlagður sigur í tveimur viðureignum, 73:48.
Aldís Ásta Heimisdóttir skoraði þrjú af mörkum Skara HF á heimavellinum í gær en álaginu var dreift á milli leikmanna. Lena Margrét Valdimarsdóttir skoraði ekki mark.
Standa vel að vígi
Arnar Birkir Hálfdánsson og liðsfélagar í Amo HK standa vel að vígi eftir sigur á IFK Tumba HK, 29:26, á heimavelli Tumba í gær. Arnar Birkir skoraði þrjú mörk með þrumufleygum.
Síðari viðureign Amo HK og IFK Tumba verður háð á miðvikudaginn.
Vinsælt lesefni:
- Auglýsing -