- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Alfreð skaut á gagnrýnendur sína

- Auglýsing -

Alfreð Gíslason, þjálfari silfurverðlaunahafa Þýskalands á Evrópumóti karla, nýtti tækifærið til þess að skjóta á gagnrýnendur sína þegar hann ræddi við þýska blaðið Bild um árangurinn á mótinu.

Alfreð var harðlega gagnrýndur eftir að Þýskaland tapaði óvænt fyrir Serbíu í riðlakeppni mótsins og var jafnvel kallað eftir því að Handknattleikssamband Þýskalands skyldi reka hann tafarlaust.

Er Alfreð var spurður hvernig honum liði með árangurinn eftir að hafa sætt svo mikilli gagnrýni hló hann og sagði: „Við vitum öll að þeir vita ekki mikið um þetta, en auðvitað er ég mjög ánægður.

Þó þetta sé nokkuð hálfbakað þá eru allir þessir aðilar sem reyna að koma sjálfum sér á framfæri að reyna að skemma fyrir okkur. Ég get haldið mínu striki í friði.“

Enginn þeirra verið þjálfari eða spilað vörn

Alfreð nefndi engin nöfn en þýskir miðlar kveðjast þess fullvissir að hann vísi í svörum sínum til Stefan Kretzschmar, Pascal Hens og Michael Kraus, sem halda saman úti hlaðvarpsþætti.

„Ef þú ert hlaðvarpsstjórnandi og þarft að tala í klukkutíma á viku þá…“ sagði Alfreð og virtist ákveða að hemja sig.

„Enginn þeirra hefur nokkurn tímann verið þjálfari. Ég veit hver skilningur þeirra á taktík er og enginn þeirra spilaði vörn í gamla daga,“ sagði hann.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -