-Auglýsing-

Alfreð vill gjarna framlengja í Þýskalandi

- Auglýsing -

Alfreð Gíslason, þjálfari þýska karlalandsliðsins, fer ekki í grafgötur með það að hann vilji halda starfi sínu áfram eftir HM 2027 í Þýskalandi. Samningur Alfreðs rennur út eftir mótið í lok janúar á næsta ári.

„Ég hef aldrei farið leynt með það að ég vil ekki hætta að vinna innan handbolta eftir heimsmeistaramótið og ég vil halda áfram að vinna með þessu liði,“ hefur þýski miðillinn Handball World eftir Alfreð.


„Ég hef ávallt verið heiðarlegur með það að samningur minn rennur út eftir heimsmeistaramótið og þeir [forvígismenn þýska handknattleikssambandsins] verða að ákveða hvað gerist næst. Ég mun samþykkja þá ákvörðun.

Ég mun ekki hætta að vinna við handbolta svo lengi sem ég tel mig geta komið með eitthvað að borðinu. Það hjálpar til,“ hélt hann áfram en Alfreð hefur áður ýjað að því að svo gæti farið að hann sitji á öðrum bekk en þeim þýska á EM 2028.

Alfreð, sem er 66 ára gamall, hefur þjálfað þýska landsliðið frá árinu 2020 og vann liðið síðast til silfurverðlauna undir hans stjórn á EM 2026 í Danmörku, Svíþjóð og Noregi.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -