„Tilfinningin er einstök og þessi liðsheild sem við sýndum í dag. Það er ekki hægt að taka út eitthvað eitt. Það hreinlega small allt hjá okkur,“ sagði Gísli Þorgeir Kristjánsson í samtali við handbolta.is í Lanxess Arena í kvöld eftir að Gísli Þorgeir og liðsfélagar í SC Magdeburg urðu Evrópumeistarar í handknattleik með sigri á Füchse Berlin í úrslitaleik, 32:26. Gísli Þorgeir var valinn mikilvægasti leikmaður úrslitahelgarinnar eins og þegar Magdeburg vann Meistaradeildina 2023.
„Sergei var frábær í markinu, vörnin var einnig frábær og síðan gerðum við fá mistök í sókninni. Auk þess hlupum við ótrúlega vel til baka og náðum að mestu að koma í veg fyrir þessu hröðu upphlaup sem Berlin er svo ógeðslega góðir í,“ sagði Gísli Þorgeir. „Það bara small allt.“
Mikil vinna síðustu tvær vikur – slitin liðbönd við viðbein
Fyrir hálfum mánuði leit fátt út fyrir að Gísli Þorgeir gæti tekið þátt í úrslitaleikjunum eftir að hann fékk þungt högg á vinstri öxl í leik í þýsku 1. deildinni.
„Það er ekki hægt að segja að síðan ég meiddist fyrir tveimur vikum að ég hafi ekkert gert, bara lagst upp í rúm og síðan mætt hingað um helgina og náð árangri. Að baki veru minni hér um helgina liggur alveg hrikalega mikil vinna alveg frá því að ég meiddist. Á hverjum degi var ég í æfingum og sjúkraþjálfun og var í hinum og þessum tækjum sem gæti mögulega hjálpað með um eitt eða tvö prósent áfram og komið mér á þann stað að ég gæti tekið þátt í þessari helgi,“ segir Gísli sem er með slitin liðbönd við hægra viðbeinið. Það tengist samt ekki öxlinni, segir Gísli sem fékk ákveðin skilaboð frá læknum.
Gæti orðið vont til að byrja með
„Læknarnir sögðu mér að þetta gæti orðið mjög vont til að byrja með en ég var alveg tilbúinn að mæta því fyrir það að hafa trú á að geta unnið þetta hér,“ segir Gísli Þorgeir Kristjánsson og lyftir gullverðlaunapeninginum fyrir sigur í Meistaradeild Evrópu í handknattleik karla.
Lengra viðtal við Gísla Þorgeir er í myndskeiði hér fyrir ofan.