- Auglýsing -

Andri Már sagður vilja fara – orðaður við þrjú evrópsks félagslið

Andri Már Rúnarsson er sagði vilja fara frá Leipzig. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -


Þýski fréttamiðillinn SportBild segir frá því í dag að landsliðsmaðurinn Andri Már Rúnarsson vilji fara frá þýska liðinu SC DHfK Leipzig eftir að föður hans, Rúnari Sigtryggssyni, var sagt upp störfum í síðustu viku. Rúnar var þjálfari Leipzig-liðsins.

Umboðsmaður á sveimi

Andri Már á eitt ár eftir af samningi sínum við SC DHfK Leipzig. Fram kemur í fréttinni að umboðsmaður Andra Más, Arnar Freyr Theodórsson hafi boðið franska meistaraliðinu Paris Saint-Germain að semja við Andra Má. Ennfremur kemur fram að þýska liðið HC Erlangen og danska liðið GOG hafi verið orðuð við Andra Má, sem fór á kostum með Leipzig-liðinu á nýliðinni leiktíð.

Karsten Günther framkvæmdastjóri SC DHfK Leipzig segir í samtali við SportBild gera ráð fyrir að Andri Már uppfylli samning sinn og leiki með liði félagsins á næsta keppnistímabili. Þeir hafi farið yfir málið áður en Andri Már fór í sumarleyfi á dögunum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -