Sænska landsliðið lagði það íslenska öðru sinni í vináttuleik í handknattleik karla í Kaplakrika í kvöld. Að þessu sinni lauk leik með þriggja marka sigri Svía, 30:27, sem voru öflugri allan síðari hálfleikinn. Munaði ekki síst um stórleik Mikael Appelgren markvarðar og hins unga og lipurlega leikstjórnanda, Axel Månsson.
Svíar voru tveimur mörkum yfir í hálfleik, 13:11. Þeir tóku úr skarði þegar á leið hálfleikinn og náðu þá mesta þriggja marka forskoti.
Þetta var fjórði tapleikur íslenska landsliðsins í röð. Allt gegn landsliðum sem það íslenska villa bera sig saman við. Næst kemur landsliðið saman fyrir miðjan maí og leikur tvo vináttuleiki við Eypta í Kaíró upp úr miðjum þeim mánuði.

Allir 17 leikmenn sem voru á skýrslu hjá Snorra Steini Guðjónssyni landsliðsþjálfara fengu að láta ljós sitt skína að þessu sinni.
Varnarleikurinn var betri en í fyrri viðureigninni. Að þessu sinni var sóknarleikurinn slakari að því leytinu til að verr gekk að nýta þau færi sem gáfust. Mikael Appelgren sá til þessa.


Rífandi góð stemning var í fullsetnum Kaplakrika í kvöld, 1.800 áhorfendur, mun betri en í N1-höllinni á fimmtudaginn.
Fyrst og síðast var gott að koma sama til leikjanna og endurgjalda landsmönnum frábæran stuðning í janúar. Einn sigur hefði hinsvegar ekki verið verra að fá úr leikjunum tveimur.
Mörk Íslands: Viggó Kristjánsson 7/3, Elvar Örn Jónsson 3, Gísli Þorgeir Kristjánsson 3, Orri Freyr Þorkelsson 3/2, Elliði Snær Viðarsson 2, Stiven Tobar Valencia 2, Teitur Örn Einarsson 2, Þorsteinn Leó Gunnarsson 1, Sigvaldi Björn Guðjónsson 1, Haukur Þrastarson 1, Arnar Freyr Arnarsson 1, Óðinn Þór Ríkharðsson 1.
Varin skot: Viktor Gísli Hallgrímsson 12/1, 28,6% – Björgvin Páll Gústavsson 1/1, 100%.
Mörk Svíþjóðar: Felix Möller 6, Axel Mänsson 5/2, Hampus Wanne 5, Albin Lagergren 4, Erik Johansson 4, Nikola Roganovic 3, Lukas Sandell 2, Felix Claar 1.
Varin skot: Mikael Appelgren 18/1, 42,9%.
Handbolti.is fylgdist með leiknum í textalýsingu hér fyrir neðan.



