Anton Gylfi Pálsson dæmir í fimmta skipti í úrslitahelgi Meistaradeildar Evrópu í Lanxess-Arena í Köln 14. júní nk. Um leið verður Jónas Elíasson, félagi Antons, dómari í fjórða sinn á úrslitahelginni. Þeir félagar dæma að þessu sinni fyrri undanúrslitaleikinn, milli Füchse Berlin og Nantes.
Norður Makedóníumennirnir Slave Nikolov og Gjorgji Nachevski dæma hina viðureign undanúrslita þegar Evrópumeistarar Barcelona og SC Magdeburg mætast.
Síðasta var nóg að gera
Síðast var kallað á þá Anton Gylfa og Jónas til að dæma viðureign SC Magdeburg og Barcelona í undanúrslitum Meistaradeildar fyrir tveimur árum, nánar tiltekið 17. júní. Þeir fengu aldeilis að vinna fyrir kaupinu vegna þess að viðureignin var framlengd og endaði síðan í vítakeppni, 40:39, fyrir Magdeburg sem síðar vann keppnina.
Anton Gylfi dæmdi fyrst í undanúrslitahelgi Meistardeildar karla í Köln fyrir 12 árum. Á þeim tíma var Hlynur Leifsson meðdómari Antons. Þeir dæmdu leik Kielce og Barcelona.
Þremur árum síðar var Anton Gylfi mættur til leiks á ný í Köln og þá með Jónasi. Þeir dæmdu viðureign PSG og Kielce um 3. sætið á sunnudeginum.
Tvö ár liðu og vorið 2018 var óskað eftir veru Antons Gylfa og Jónasar í Lanxess Arena til að halda uppi röð og reglu í leik Vardar og Montpellier í undanúrslitum. Fimm ár liðu þar til kom að næsta leik þeirra félaga.
Stefán dæmdi fjórum sinnum
Áður en fyrirkomulagi keppninnar var breytt og tekin upp sérstök úrslitahelgi með fjórum síðustu leikjunum voru íslenskir dómarar valdir til þess að dæma leiki á lokaspretti Meistaradeildar Evrópu.
Stefán Arnaldsson og Gunnar Viðarsson dæmdu fyrri úrslitaleik Portland San Antonio frá Spáni og Montpellier í Meistaradeildinni vorið 2003. Þeir dæmdu einnig fyrri undanúrslitaleik Kiel og Badel Zagreb vorið 2000.
Stefán dæmdi áður með Rögnvald Erlingssyni um árabil. Þeir dæmdu fyrri undanúrslitaleik Split og Kiel á vordögum 1998. Árið áður, 19. apríl 1997, dæmdu Stefán og Rögnvald síðari úrslitaleik Barcelona og Badel Zagreb í Meistaradeildinni að viðstöddum 11 þúsund áhorfendum í Zagreb. Barcelona vann leikinn, 30:23, eftir öruggan sigur á heimavelli, 31:22.