Arnór Atlason, aðstoðarþjálfari íslenska karlalandsliðsins og þjálfari karlaliðs TTH Holstebro í dönsku úrvalsdeildinni, vonast til þess að íslenska liðið þurfi ekki að bíða í önnur 16 ár eftir því að komast aftur í undanúrslit á stórmóti.
Ísland hafnaði í fjórða sæti á nýafstöðnu Evrópumóti en hafði síðast komist í undanúrslit á EM 2010, þar sem liðið vann til bronsverðlauna í fyrsta og eina skiptið á Evrópumóti.
„Auðvitað vona ég að það líði ekki 16 ár aftur. Í fyrsta lagi hafa strákarnir sýnt sjálfum sér og heiminum að við erum með mjög gott handboltalið. Ég held að það leiki enginn vafi á því,
Við erum lið sem vill vera í hópi fjóru bestu en það eru margir fleiri sem vilja það og samkeppnin er mjög hörð,“ sagði Arnór í samtali við danska miðilinn hbold.dk.
Hvernig toppum við á réttum tíma?
Hjá fámennri þjóð er breiddin eðlilega minni og því þarf íslenska liðið að vanda sérlega vel til verka.
„Á þessum tímapunkti erum við ekki með það mikla breidd samanborið við aðrar þjóðir og því þurfum við að hugsa vel og vandlega um hvernig við framkvæmum hlutina. Spurningin er hvernig við toppum á réttum tíma.
Við erum ánægðir með að vera komnir beint á heimsmeistaramótið á næsta ári. Þá munum við eiga að minnsta kosti hálft tímabil án streituvaldandi leikja, þar sem við getum vonandi byggt okkur enn frekar upp,“ bætti hann við.



