- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Aron ekki með í síðasta leiknum – Veszprém meistari – myndir – myndskeið

Leikmenn One Veszprém taka við verðlaunum sínum í dag. Ljósmynd/Jón Oddur
- Auglýsing -


Ungverska liðið One Veszprém varð í dag ungverskur meistari í handknattleik eftir sigur á höfuðandstæðingi sínum, Pick Szeged, í hreinum úrslitaleik á heimavelli, 34:31. Aron Pálmarsson og Bjarki Már Elísson tóku ekki þátt í leiknum. Viðureignin átti að vera sú síðasta hjá Aroni sem hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna í sumar. Aron er veikur eftir því sem vísir segir frá. Bjarki Már er meiddur.


Janus Daði Smárason skoraði eitt mark fyrir Pick Szeged og hreppir þar með silfurverðlaun á sinni fyrstu leiktíð með ungverska liðinu. Pick Szeged vann á hinn bóginn bikarkeppnina í Ungverjalandi í apríl eftir sigur á one Veszprém í úrslitaleiknum.

Auk Arons þá lék a.m.k. Frakkinn Ludovig Fabregas sinn síðasta leik fyrir Veszprém en hann mun vera á leiðinni til Barcelona á nýjan leik eftir tvö ár í Veszprém.

Hér fyrir eru myndskeið og nokkrar myndir sem handbolti.is fékk sendar frá Íslendingi sem var á úrslitaleiknum í dag.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -