- Auglýsing -
- Auglýsing -

Gunnar Egill Daníelsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Hvalreki á fjörur ÍBV – Andrea semur til tveggja ára

Andrea Jacobsen, landsliðskona í handknattleik, hefur skrifað undir tveggja ára samning við ÍBV og gengur til liðs við félagið frá þýska félaginu Blomberg-Lippe í sumar. Andrea, sem er 27 ára vinstri skytta, hefur leikið sem atvinnumaður í Þýskalandi og Danmörku...

Hjartsláttartruflanir en ekki höfuðmeiðsli hjá Hald

Danska varnartröllið Simon Hald hefur opinberað að hjartsláttartruflanir hafi valdið því að hann þurfti að fara af velli snemma í síðari hálfleik í undanúrslitum Evrópumótsins gegn Íslandi í Herning en ekki höfuðmeiðsli eins og danskir fréttamiðlar höfðu greint frá...

Alfreð furðaði sig á dómgæslunni

Alfreð Gíslason, þjálfari Þýskalands, sýtti sérstaklega fjarveru tveggja sterkra varnarmanna eftir tap liðsins fyrir Danmörku, 34:27, í úrslitaleik Evrópumóts karla í Herning í Danmörku í gær. Þá undraði hann sig á notkun dómara leiksins á myndbandsdómgæslu. Justus Fischer, mjög sterkur...

Gidsel sló markametið á Evrópumótinu

Mathias Gidsel sló í kvöld markamet Evrópumóts karla þegar hann skoraði sjö mörk í sjö marka sigri Danmerkur á Þýskalandi í úrslitaleik mótsins í Herning í kvöld. Gidsel skoraði alls 68 mörk í níu leikjum á Evrópumótinu og bætti þar...
- Auglýsing-

Danmörk Evrópumeistari í fyrsta sinn í 14 ár

Danmörk tryggði sér í kvöld Evrópumeistaratitil karla á heimavelli með því að leggja Þýskaland, sem Alfreð Gíslason þjálfar, 34:27 í úrslitaleik í Jyske Bank Boxen í Herning í kvöld. Alfreð og Þjóðverjar gera sér því silfrið að góðu. Er þetta...

Myndasyrpa: Evrópumótið kvatt eftir tap fyrir Króatíu

Ísland hefur lokið leik á Evrópumóti karla í Danmörku, Svíþjóð og Noregi. Ísland tapaði bronsleiknum í Herning í Danmörku í dag og hafnar því í fjórða sæti. Þrátt fyrir að vera undir allan leikinn gafst íslenska liðið ekki upp og...

Mikið áfall fyrir heimsmeistarana

Heimsmeistarar Danmerkur hafa orðið fyrir miklu áfalli fyrir úrslitaleik Evrópumóts karla gegn Þýskalandi sem hefst klukkan 17 í Jyske Bank Boxen í Herning í Danmörku í dag. Simon Hald getur ekki tekið þátt í leiknum vegna meiðsla. Hald hlaut höfuðhögg...

Wolff tekur upp hanskann fyrir Alfreð

Andreas Wolff, markvörður Þýskalands, skilur ekkert í gagnrýni í garð Alfreðs Gíslasonar sem ákvað að láta David Späth spila nánast allan leikinn þegar Þýskaland og Danmörk mættust í milliriðli í síðustu viku. Danir unnu þann leik og komst Späth...
- Auglýsing-

Markvörðurinn knái ekki með gegn Íslandi

Dominik Kuzmanovic, öflugur markvörður Króatíu, er ekki í leikmannahópi liðsins fyrir bronsverðlaunaleik Evrópumótsins gegn Íslandi í Herning í dag. Eins og handbolti.is greindi frá fyrr í dag hafa veikindi herjað á lærisveina Dags Sigurðssonar í Króatíu. Veikindi eru sögð herja á...

Um höfund

Gunnar Egill Daníelsson hefur unnið við blaðamennsku frá árinu 2018. Fyrst starfaði hann sem fréttastjóri hjá hringbraut.is og vann svo fyrir Stundina (nú Heimildina) sem verktaki. Gunnar Egill starfaði sem íþróttablaðamaður hjá Morgunblaðinu og mbl.is frá 2020 til 2025. Hann hóf störf hjá handbolti.is 1. febrúar 2026 og er félagi Blaðamannafélags Íslands og Samtaka íþróttafréttamanna. Áhugamál fyrir utan íþróttir eru meðal annars hryllingsmyndir og málmtónlist. Netfang: [email protected]
129 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -