- Auglýsing -
- Auglýsing -

Gunnar Egill Daníelsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Wille verður þjálfari Óðins Þórs

Norðmaðurinn Jonas Wille, fráfarandi þjálfari norska karlalandsliðsins, hefur verið ráðinn nýr þjálfari karlaliðs Kadetten Schaffhausen í Sviss. Landsliðsmaðurinn Óðinn Þór Ríkharðsson leikur með Kadetten. Wille var sterklega orðaður við starfið um helgina. Hann lætur af störfum sem landsliðsþjálfari Noregs að...

Sér mikið eftir sölunni á Viggó

Karsten Günther, framkvæmdastjóri þýska félagsins DHfK Leipzig, viðurkennir að það sé honum þungbært að sjá karlaliðið berjast í bökkum á botni 1. deildarinnar og að það hafi verið mistök að selja Viggó Kristjánsson til HC Erlangen í janúar 2025. Leipzig...

Valur getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í kvöld

Fjórði leikur úrslitaeinvígis FH og Vals um Íslandsmeistaratitilinn fer fram í kvöld klukkan 19.30 í Kaplakrika. Staðan í einvíginu er 2:1 fyrir Val, sem getur því með sigri tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn. FH þarf á sigri að halda til að...

Thea Imani heldur til Rúmeníu

Landsliðskonan Thea Imani Sturludóttir hefur samið við rúmenska félagið SCM Craiova um að leika með liðinu frá og með næsta tímabili. Þetta kemur fram í tilkynningu á samfélagsmiðlum Vals. Thea hefur verið lykilmaður hjá Val um langt árabil og unnið...
- Auglýsing-

Alfreð gantast: „Gæti þurft að svipta hann bandinu“

Alfreð Gíslason, þjálfari þýska karlalandsliðsins, sló á létta strengi í innslagi Handknattleikssambands Þýskalands á Youtube-rás sambandsins á dögunum. Í innslaginu var rætt við Alfreð og Niko Kovac, þjálfara karlaliðs BV Borussia Dortmund í fótbolta, um hitt og þetta. Alfreð sagðist...

Bindur enda á 29 ára feril

Spænski markvörðurinn Silvia Navarro hefur ákveðið að leggja handboltaskóna á hilluna þegar yfirstandandi tímabili lýkur. Hún er 47 ára gömul og hóf meistaraflokksferil sinn árið 1997. Ótrúlegur 29 ára ferill er því senn á enda. Navarro hefur leikið með BM...

Vill binda lóð við fótinn á Guðjóni Val

Daniel Duhr, dálkahöfundur hjá þýska miðlinum Handball World, tileinkar dálk sinn á vefnum í dag Guðjóni Val Sigurðssyni, þjálfara VfL Gummersbach. Þar sparar Duhr ekki stóru orðin og hvetur félagið til þess að framlengja samning Guðjóns Vals tafarlaust. Ellegar megi...

Adam Haukur hættur – lék með Haukum alla tíð

Adam Haukur Baumruk, leikmaður Hauka, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna 32 ára að aldri. Hann lék allan sinn meistaraflokksferil með Haukum og lék sömuleiðis með Hafnarfjarðarliðinu í yngri flokkum. Adam Haukur greindi frá því að hann væri hættur...
- Auglýsing-

Gunnar Valur skrifar undir langtímasamning

Gunnar Valur Arason, yfirþjálfari handknattleiksdeildar Fjölnis, hefur skrifað undir nýjan samning við félagið sem gildi til næstu fjögurra ára. Gunnar Valur hefur sinnt starfinu undanfarin ár og ríkir mikil ánægja með hans störf innan félagsins. „Hann hefur reynst deildinni afar verðmætur...

„Réttlætingin fyrir þessu er grín“

Forvígismaður þýska félagsins VfL Oldenburg er ekki á eitt sáttur við að stjórnendur 1. deildar kvenna hafi ákveðið að hafna umsókn félagsins um leyfi fyrir því að halda úti ungmennastarfi. Auk þess hefur deildin ákveðið að sekta Oldenburg um 12.000...

Um höfund

Gunnar Egill Daníelsson hefur unnið við blaðamennsku frá árinu 2018. Fyrst starfaði hann sem fréttastjóri hjá hringbraut.is og vann svo fyrir Stundina (nú Heimildina) sem verktaki. Gunnar Egill starfaði sem íþróttablaðamaður hjá Morgunblaðinu og mbl.is frá 2020 til 2025. Hann hóf störf hjá handbolti.is 1. febrúar 2026 og er félagi Blaðamannafélags Íslands og Samtaka íþróttafréttamanna. Áhugamál fyrir utan íþróttir eru meðal annars hryllingsmyndir og málmtónlist. Netfang: [email protected]
446 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -