- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Alfreð gantast: „Gæti þurft að svipta hann bandinu“

- Auglýsing -

Alfreð Gíslason, þjálfari þýska karlalandsliðsins, sló á létta strengi í innslagi Handknattleikssambands Þýskalands á Youtube-rás sambandsins á dögunum. Í innslaginu var rætt við Alfreð og Niko Kovac, þjálfara karlaliðs BV Borussia Dortmund í fótbolta, um hitt og þetta.

Alfreð sagðist í innslaginu hafa verið stuðningsmaður Borussia Dortmund allt frá árinu 1983, eða stuttu eftir að hann gekk til liðs við TUSEM Essen í þýsku 1. deildinni það ár.


Erkifjendur Dortmund eru Schalke 04. „Eftir nokkra mánuði fórum við í liðinu að ræða um fótbolta og hver studdi hvaða lið. Flestir liðsfélaga minna studdu Schalke og tveir fæddust í Dortmund.

Þá sagði ég: „Þá styð ég minni spámanninn.“ Síðan þá hef ég verið stuðningsmaður BVB,“ sagði Alfreð.

Varafyrirliðinn harður stuðningsmaður Schalke

Innslagið var tekið upp fyrir helgi en Schalke, sem áður var á meðal sterkustu liða Þýskalands, vann sér inn sæti í þýsku 1. deildinni að nýju með 1:0 sigri á Fortuna Düsseldorf um helgina.


Varafyrirliði þýska handboltalandsliðsins er Julian Köster, leikmaður VfL Gummersbach sem fer til THW Kiel í sumar. Köster er harður stuðningsmaður Schalke.

„Ef það gerist þá gæti ég þurft að svipta hann varafyrirliðabandinu,“ sagði Alfreð í léttum dúr er hann var spurður hvað það myndi þýða ef fótboltalið Schalke kæmist aftur í deild þeirra bestu, sem er nú orðið að veruleika.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -