- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Bindur enda á 29 ára feril

- Auglýsing -

Spænski markvörðurinn Silvia Navarro hefur ákveðið að leggja handboltaskóna á hilluna þegar yfirstandandi tímabili lýkur. Hún er 47 ára gömul og hóf meistaraflokksferil sinn árið 1997.

Ótrúlegur 29 ára ferill er því senn á enda. Navarro hefur leikið með BM Remudas í heimalandinu frá árinu 2013, lék í eitt tímabil með CS Oltchim Ramnicu Valcea í Rúmeníu en annars á Spáni.


Á ferlinum vann hún til silfurverðlauna í Meistaradeild Evrópu með SD Itxako, þar sem Navarro lék frá 2006 til 2012. Hún vann Evrópudeildina með liðinu árið 2009 og til silfurverðlauna í keppninni árið á undan.

Með Spáni vann Navarro til silfurverðlauna á EM 2008, bronsverðlauna á HM 2011 og einnig bronsverðlauna á Ólympíuleikunum 2012.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -