- Auglýsing -
- Auglýsing -

Gunnar Egill Daníelsson

- Auglýsing -
- Auglýsing -

Hinn mikilvægi þriðji úrslitaleikur stendur fyrir dyrum

Valur og FH mætast í þriðja sinn í úrslitum Olísdeildar karla í N1 höllinni á Hlíðarenda í kvöld. Staðan í einvíginu er 1:1 eftir að liðin hafa unnið sinn hvorn heimaleikinn til þessa. Þriðji leikur úrslitaeinvígisins er oft talinn mikilvægastur...

Skórnir endanlega komnir á hilluna hjá Sunnu

Sunna Jónsdóttir, þrautreyndur leikmaður Fram og fyrirliði íslenska landsliðsins um skeið, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Staðfesti hún ákvörðun sína í samtali við Handkastið. „Skórnir komnir lengst upp og innst inn í hillu upp á háalofti,“ sagði Sunna...

Efnilegur piltur skrifar undir hjá Þór

Gunnar Bragi Reimarsson, 15 ára leikstjórnandi hjá Þór á Akureyri, hefur skrifað undir sinn fyrsta samning við uppeldisfélagið. Í tilkynningu frá handknattleiksdeild Þórs kemur ekki fram til hve langs tíma hann samdi. Gunnar Bragi hefur ekki ennþá leikið með meistaraflokki...

Andri Már getur gert föður sínum stóran greiða

Andri Már Rúnarsson, Viggó Kristjánsson og liðsfélagar þeirra í HC Erlangen heimsækja Blæ Hinriksson og félaga í DHfK Leipzig í þýsku 1. deildinni annað kvöld. Leikurinn gæti haft tilfinningalegt gildi fyrir Andra Má af ýmsum ástæðum. Andri Már lék nefnilega...
- Auglýsing-

Man ekki eftir að hafa séð þetta áður á kvennaleik

Magnús Stefánsson, þjálfari kvennaliðs ÍBV, var að vonum himinlifandi með 36:31 sigur liðsins á Haukum í tvíframlengdum oddaleik í undanúrslitum Olísdeildarinnar í gærkvöldi. ÍBV mætir Val í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn. Magnús var sérstaklega ánægður með góða mætingu og stemninguna sem...

Dana Björg kveður Volda

Landsliðskonan Dana Björg Guðmundsdóttir kvaddi norska félagið Volda formlega á samfélagsmiðlum í vikunni. Volda hefur lokið leik í B-deildinni á tímabilinu, hafnaði þar í fimmta sæti. Dana Björg er á förum til stórliðsins Larvik, sem er á meðal sterkustu liða...

„Það er bara hálfleikur“

Þýska stórliðið THW Kiel tapaði ansi óvænt 33:30 fyrir RK Nexe Nasice í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Evrópudeildar karla í Króatíu í gærkvöldi. Fyrir fram höfðu þýskir miðlar búist við þægilegri viðureign. „Það er einungis hálfleikur. Nú...

Myndskeið: Markvarsla ársins hjá Viktori Gísla?

Á samfélagsmiðlum Handknattleikssambands Evrópu í dag er ótrúleg markvarsla Viktors Gísla Hallgrímssonar í fræknum átta marka sigri á Svíþjóð í milliriðli á EM 2026 í Malmö rifjuð upp. Viktor Gísli varði þá stórglæsilega frá Eric Johansson sem hafði brotist í...
- Auglýsing-

Guðjón Valur fær nýjan þjálfara til aðstoðar

Þýska félagið VfL Gummersbach hefur ráðið Portúgalann André Teixeira í starf markmannsþjálfara. Teixeira tekur við starfinu í sumar og skrifaði undir tveggja ára samning. Guðjón Valur Sigurðsson er þjálfari liðsins. Hann starfar sem stendur sem markmannsþjálfari HC Erlangen, sem Viggó...

Yngri bróðir Sagosen í landsliðinu í fyrsta sinn

Sander Sagosen og yngri bróðir hans, hinn 18 ára gamli Ciljan, eru báðir í norska landsliðshópnum sem Jonas Wille, fráfarandi landsliðsþjálfari, hefur valið fyrir mikilvæga leiki gegn Tyrklandi í maí í umspili um sæti á HM 2027. Ciljan er leikstjórnandi...

Um höfund

Gunnar Egill Daníelsson hefur unnið við blaðamennsku frá árinu 2018. Fyrst starfaði hann sem fréttastjóri hjá hringbraut.is og vann svo fyrir Stundina (nú Heimildina) sem verktaki. Gunnar Egill starfaði sem íþróttablaðamaður hjá Morgunblaðinu og mbl.is frá 2020 til 2025. Hann hóf störf hjá handbolti.is 1. febrúar 2026 og er félagi Blaðamannafélags Íslands og Samtaka íþróttafréttamanna. Áhugamál fyrir utan íþróttir eru meðal annars hryllingsmyndir og málmtónlist. Netfang: [email protected]
446 POSTS
0 COMMENTS
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -