Sander Sagosen og yngri bróðir hans, hinn 18 ára gamli Ciljan, eru báðir í norska landsliðshópnum sem Jonas Wille, fráfarandi landsliðsþjálfari, hefur valið fyrir mikilvæga leiki gegn Tyrklandi í maí í umspili um sæti á HM 2027.
Ciljan er leikstjórnandi eins og eldri bróðir sinn, sem er tólf árum eldri, og hefur vakið athygli fyrir vasklega framgöngu með Bergen Håndball í norsku úrvalsdeildinni á tímabilinu. Er hann í A-landsliðinu í fyrsta sinn. Sander leikur með danska stórliðinu Aalborg Håndbold.
„Ég held að ég sé ekki alveg búinn að átta mig á þessu ennþá. Þetta er draumur. Ég hefði aldrei trúað því að þetta myndi gerast svona fljótt. Ég held að ég hafi verið að vonast til þess að Sander myndi spila með landsliðinu í fimm ár í viðbót,“ sagði Ciljan og hló er hann ræddi við norsku sjónvarpsstöðina TV 2.
„Þetta er frábært og algjör draumur. Ég tel, og það þrátt fyrir að ég sé ekki hlutlaus, að þetta sé fyllilega verðskuldað. Þetta er mjög skemmtilegt fyrir okkur báða.
Ég fékk skilaboð frá pabba um helgina að bræðurnir myndu spila saman með landsliðinu. Þannig að ég var fljótur að hringja heim til þess að fá það á hreint. Þetta er frábært fyrir alla fjölskylduna og eintóm gleði,“ sagði Sander við TV 2.


