- Auglýsing -
Gunnar Bragi Reimarsson, 15 ára leikstjórnandi hjá Þór á Akureyri, hefur skrifað undir sinn fyrsta samning við uppeldisfélagið. Í tilkynningu frá handknattleiksdeild Þórs kemur ekki fram til hve langs tíma hann samdi.
Gunnar Bragi hefur ekki ennþá leikið með meistaraflokki Þórs en þykir mikið efni. Ásamt því að stýra spilinu er hann öflugur varnarmaður.
Gunnar Bragi hefur skorað 132 mörk í 17 leikjum fyrir 4. flokk Þórs, sem leikur í efstu deild, á tímabilinu auk þess að hafa æft með meistaraflokki.
„Nú fer Gunnar að taka sín fyrstu skref með meistaraflokk Þórs en ljóst er að framtíðin er björt hjá þessum efnilega leikmanni!“ sagði meðal annars í tilkynningu handknattleiksdeildar Þórs.
- Auglýsing -



