- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Man ekki eftir að hafa séð þetta áður á kvennaleik

- Auglýsing -

Magnús Stefánsson, þjálfari kvennaliðs ÍBV, var að vonum himinlifandi með 36:31 sigur liðsins á Haukum í tvíframlengdum oddaleik í undanúrslitum Olísdeildarinnar í gærkvöldi. ÍBV mætir Val í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn.

Magnús var sérstaklega ánægður með góða mætingu og stemninguna sem myndaðist í íþróttamiðstöð Vestmannaeyja í gærkvöldi.

ÍBV í úrslit eftir maraþonleik í Vestmannaeyjum


„[Þ]að er engu líkt að spila fyrir framan allt þetta fólk í þessum ham. Það eru forréttindi að fá að gera þetta og ég myndi segja að það væru forréttindi fyrir andstæðingana líka að fá að spila í þessari stemningu og geðveiki,“ sagði Magnús í samtali við mbl.is eftir leikinn.

„Ég hef ekki séð þetta áður á kvennaleik, ég man allavega ekki eftir því. Mér finnst fólk vera að mæta í stúkuna og maður heyrir líka að það er verið að leggja líf og sál í leikinn frá stúkunni. Það skilar sér svo sterkt inn á völlinn, vonandi höldum við áfram að fá allt þetta fólk á völlinn til að styðja við okkur,“ bætti hann við.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -