- Auglýsing -
Landsliðskonan Dana Björg Guðmundsdóttir kvaddi norska félagið Volda formlega á samfélagsmiðlum í vikunni. Volda hefur lokið leik í B-deildinni á tímabilinu, hafnaði þar í fimmta sæti.
Dana Björg er á förum til stórliðsins Larvik, sem er á meðal sterkustu liða úrvalsdeildarinnar í Noregi, í sumar.
Dana Björg til eins af stórliðum Noregs
Hún spilaði ekkert með Volda undanfarna mánuði vegna meiðsla og er nú komið að kveðjustund þar sem liðið komst ekki í umspil um sæti í úrvalsdeildinni.
„Takk fyrir mig Volda. Ég er þakklát fyrir frábær fjögur ár sem ég hef átt ár og allt frábæra fólkið sem ég hef kynnst á þessari vegferð. Þið létuð árin líða hjá á augabragði!“ skrifaði Dana Björg á Instagram aðgangi sínum.
- Auglýsing -



