Andri Már Rúnarsson, Viggó Kristjánsson og liðsfélagar þeirra í HC Erlangen heimsækja Blæ Hinriksson og félaga í DHfK Leipzig í þýsku 1. deildinni annað kvöld. Leikurinn gæti haft tilfinningalegt gildi fyrir Andra Má af ýmsum ástæðum.
Andri Már lék nefnilega með Leipzig á síðasta tímabili og þá undir stjórn föður síns Rúnars Sigtryggssonar. Rúnar var látinn taka pokann sinn þaðan síðastliðið sumar og Andri Már ákvað sömuleiðis að róa á önnur mið stuttu síðar.
„Ég hef ekki farið aftur til Leipzig síðan ég yfirgaf félagið þannig að það verður mjög sérstök tilfinning. Það verður einstakt og það er frábært að hitta gamla vini á ný. En auðvitað einbeitum við okkur að leiknum og að vinna hann,“ sagði Andri Már í samtali við Sport Bild.
Erlangen var í harðri fallbaráttu á síðasta tímabili en hefur siglt lygnan sjó á yfirstandandi tímabili, þó sigur annað kvöld færi langt með að tryggja sæti liðsins í deild þeirra bestu. Leipzig er hins vegar á botni deildarinnar.
Kæmi sér vel fyrir lærisveina Rúnars
Auk þess er Rúnar faðir hans núverandi þjálfari HSG Wetzlar sem er í þriðja neðsta sæti, aðeins einu stigi fyrir ofan Minden í næstneðsta sæti og tveimur fyrir ofan botnlið Leipzig. Sigur hjá Erlangen kæmi sér því einnig afskaplega vel fyrir Rúnar.

„Ég reyni að hugsa ekki of mikið um það. Þetta er auðvitað áhugaverð staða. Þetta eru tvö lið sem vilja alls ekki vera þarna. Það er enn allt opið,“ sagði Andri Már.
Sport Bild rifjar upp að viðskilnaður Leipzig og feðganna hafi ekki verið sem bestur. „Margar ástæður lágu að baki því að ég tók þessa ákvörðun. Það er fyrir svo löngu síðan núna að ég hugsa ekki lengur um það,“ sagði hann um viðskilnaðinn.



