Þýska félagið VfL Gummersbach hefur ráðið Portúgalann André Teixeira í starf markmannsþjálfara. Teixeira tekur við starfinu í sumar og skrifaði undir tveggja ára samning. Guðjón Valur Sigurðsson er þjálfari liðsins.
Hann starfar sem stendur sem markmannsþjálfari HC Erlangen, sem Viggó Kristjánsson og Andri Már Rúnarsson leika með. Hjá Gummersbach mun hann þjálfa markverði aðalliðsins og unglingaliðanna auk þess að njósna um álitlega markverði.
„Við erum hæstánægð með að bjóða André velkominn og að hann muni fyrst og fremst þjálfa Nacho og Bertram en einnig þróa markverði úr akademíunni okkar.
Það var mikilvægt fyrir okkur að hann hafi umsjón með markvörðum í gegnum allt félagið og að okkar mati höfum við fundið akkúrat réttu manneskjuna í það verkefni,“ sagði Guðjón Valur í samtali við heimasíðu Gummersbach.



