Adam Haukur Baumruk, leikmaður Hauka, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna 32 ára að aldri. Hann lék allan sinn meistaraflokksferil með Haukum og lék sömuleiðis með Hafnarfjarðarliðinu í yngri flokkum.
Adam Haukur greindi frá því að hann væri hættur handknattleiksiðkun í samtali við Handkastið. Faðir hans, Tékkinn Petr, lék með Haukum undir lok síðustu aldar og var geysilega sigursæll. Petr lék með landsliði Tékkóslóvakíu á Ólympíuleikunum 1988 og 1992.
Adam Haukur var sömuleiðis sigursæll á ferli sínum með Haukum. Hann varð Íslandsmeistari með liðinu 2014 og 2015, bikarmeistari 2014 og 2026 og varð deildarmeistari árin 2012, 2013, 2014, 2019 og 2021.
Var Adam Haukur einkar öflugur varnarmaður og einbeitti sér að varnarleik undanfarin ár. Árin á undan gerði hann sig gildandi í sóknarleiknum sem vinstri skytta.



